Hugsanir okkar eru einkamál: Taugatækni, siðfræði og hugrænt frelsi María K. Jónsdóttir skrifar 16. mars 2026 07:00 Síðustu 25 ár hefur umfjöllun um taugasiðfræði (e. neuroethics) og mannréttindi vegna notkunar á taugatækni (e. neurotechnology) orðið áberandi en með taugatækni má örva heilann og fylgjast með og breyta starfsemi hans. Taugatækni hefur tvær gerólíkar hliðar. Annars vegar eru aðferðir sem eru notaðar í læknisfræðilegum tilgangi. Dæmi um þetta eru heilaígræði (e. brain implant), eða rafskaut, sem grædd eru í heila Parkinson sjúklinga til að bæta hreyfigetu. Einnig má beita segulörvun í gegnum höfuðkúpuna til að meðhöndla alvarlegt þunglyndi. Íslenskir sjúklingar hafa notið góðs af báðum aðferðum. Hinsvegar er sú hlið á taugatækni sem kann að minna á vísindaskáldskap enda tækniframfarir hraðar og ekki fyrirsjáanlegt hvert þær leiða. Af þeim sökum hafa m.a. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og Evrópuráðið sett viðmið um siðferðilega notkun taugatækni til að vera við öllu búin í stað þess að þurfa að taka í taumana þegar of langt er seilst og mannréttindum ógnað. Einna mestar áhyggjur hafa fræðimenn af því að fólk missi að hluta sjálfræði yfir eigin huga. Þetta er m.a. vegna þess að upp hafa sprottið einkafyrirtæki sem skrá heilaupplýsingar, með hagnýtingu í huga. Til dæmis eru seldir nemar sem skrá heilabylgjur til að fylgjast með þreytu starfsmanna (s.s. lestarstjóra). Einnig hafa ýmis fyrirtæki, meðal annars í eigu Elon Musk, hannað heilaígræði. Vissulega er enn hvorki hægt að lesa hugsanir okkar né tilfinningar úr þeim gögnum sem safnast með taugatæknilegum aðferðum en sumir óttast að með frekari framförum í tækni, túlkun og úrlestri gagnanna og gervigreind verði vegið að hugsanafrelsi og frjálsum vilja, jafnræði og að siðferðileg sjónarmið ráði ekki alltaf för. Hugtökin taugasiðfræði og taugatækni eru sögulega samtvinnuð því taugasiðfræði varð til sem andsvar við tæknilegum framförum í taugavísindum. Taugasiðfræði tekur til siðfræðilegra álitamála í heilarannsóknum og hagnýtingu taugavísindalegra rannsókna, svo og mótun lagaramma og stefnu í heilbrigðismálum. Einn þáttur taugasiðfræði er svokallað hugrænt frelsi (e. cognitive liberty) en samkvæmt því eiga allir að ráða yfir eigin heilastarfsemi og hugsunum. Hversu ógeðfelldar eða siðlausar sem hugsanir okkar kunna að virðast öðrum eru þær alfarið okkar einkamál og ættu að vera það nema við kjósum að deila þeim með öðrum og sköðum ekki aðra með því að framfylgja hugsunum sem eru á skjön við lög og almennt siðferði. Að sama skapi er það okkar að ákveða hvort heilastarfsemi okkar sé breytt með lyfjum og taugatækni. Samkvæmt hugmyndinni um hugrænt frelsi megum við gera það sem við viljum til að efla hugsun okkar og hugræna getu, t.d. með lyfjum eða heilaörvunartækni sem nú má kaupa á netinu, eða jafnvel með notkun heilaígræða. En auðvitað er hér sitthvað að varast. Hugrænt frelsi má ekki valda öðrum tjóni. En hvað með hugsanlegan óbeinan skaða sem hlýst af notkun efna eða tækni sem breyta heilastarfsemi? Slíkt getur til dæmis leitt til kostnaðar í heilbrigðiskerfinu og aðrir geta hlotið beinan skaða af ef einhver í annarlegu ástandi veldur öðrum tjóni. Nú er vart hægt að opna fjölmiðla án þess að rekast á umfjöllun um gervigreind. Taugatækni fær ekki viðlíka athygli þrátt fyrir að geta einnig haft afdrifaríkar afleiðingar. Þótt við njótum nú hugræns frelsis telja ýmsir að í framtíðinni munum við ekki eiga öruggt athvarf í okkar eigin huga. Að hugur okkar, sem gerir okkur að því sem við erum, verði ekki alltaf öðrum óhultur. Þess í stað verði hann hugsanlega aðgengilegur öðrum til að skoða eða ráðskast með og breyta. Hvort það sé of mikil svartsýni eða ekki skal ósagt látið. Pistillinn er skrifaður í tilefni af Alþjóðlegri heilaviku sem verður fagnað í Háskólanum í Reykjavík dagana 16.-22. mars. Dagskrá viðburða er að finna á vefsíðu Háskólans í Reykjavík, hr.is. Höfundur er prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í klínískri taugasálfræði á Minnismóttöku LSH-Landakoti. Nokkrar heimildir: Crutchfield (2024). https://link.springer.com/article/10.1007/s11673-024-10344-0 Farahany (2023). https://magazine.law.duke.edu/nita-farahany-qa-on-cognitive-liberty-fall-2023/ Ienca (2017). https://www.scientificamerican.com/article/preserving-the-right-to-cognitive-liberty/ Kostick-Quenet et al. (2022). https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC9050172/ Waisberg et al. (2024). https://link.springer.com/article/10.1007/s10439-024-03511-2 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Geðheilbrigði Háskólar Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun