Innlent

Loka Flat­eyrar­vegi í kvöld

Eiður Þór Árnason skrifar
Ljósmyndin er frá árinu 2020 þegar Flateyrarvegi var lokað vegna snjóflóðs.
Ljósmyndin er frá árinu 2020 þegar Flateyrarvegi var lokað vegna snjóflóðs. Vísir/Jóhann k.

Flateyrarvegi á Vestfjörðum verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna aukinnar snjóflóðahættu. Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu segir að staðan á veginum verði endurmetin í fyrramálið.

Gul viðvörun vegna hríðarveðurs er í gildi á Vestfjörðum fram til klukkan 6 í fyrramálið. Spáð er norðan og norðvestan 15 til 20 metrum á sekúndu í landshlutanum með snjókomu og skafrenningi, að sögn Veðurstofu Íslands. Þessu fylgir lélegt skyggni og líkur á samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum.

Veginum um Súðavíkurhlíð var lokað um hádegi í dag en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri.

Sömuleiðis hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna veðurs á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra. 

Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×