Viðskipti innlent

Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur al­veg rosa­lega vel“

Árni Sæberg skrifar
Starfsmenn Skattsins í Katrínartúni hafa í nægu að snúast í dag.
Starfsmenn Skattsins í Katrínartúni hafa í nægu að snúast í dag. Vísir/Vilhelm

Frestur einstaklinga til að skila skattframtali vegna tekna í fyrra rennur út á miðnætti. Deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá Skattinum segir um 230 þúsund einstaklinga þegar hafa skilað framtali og búist sé við að rúmlega 30 þúsund til viðbótar geri það í dag. Þótt fresturinn renni út á miðnætti verði hægt að skila framtalinu eftir það en mikilvægt sé að gera það sem allra fyrst. Sé skilað eftir framtalsfrest aukist áhætta á að Skatturinn áætli tekjur.

Opnað var fyrir skil á skattframtali einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, á þjónustuvef Skattsins þann 27. febrúar og frestur til að skila rennur út á miðnætti. Allar helstu upplýsingar eru foráritaðar inn á framtalið og því fljótlegt og auðvelt að yfirfara upplýsingar, bæta við ef eitthvað vantar og staðfesta að lokum, að því er segir á vef Skattsins.

Fagaðilar, bókarar og endurskoðendur hafa frest til 15. apríl til að skila fyrir sína skjólstæðinga.

Rúmlega þrjátíu þúsund í gær

Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá Skattinum, segir í samtali við Vísi að skilin hafi farið hægt af stað eins og venjulega. Til að mynda hafi 33 þúsund skilað framtali í gær og búist sé við öðrum eins fjölda í dag. Alls hafi 230 þúsund skilað en framtalsskyldir einstaklingar séu um 360 þúsund.

„Þetta gengur bara allt vel. Engin vandamál komið upp og gengur svolítið sinn vanagang.“

Loka ekki fyrir skil

Fólk er eðlilega hvatt til þess að halda sig innan uppgefins skilafrests en að sögn Helgu Lilju verður þó ekki lokað fyrir framtalsskil á miðnætti.

„Ef fólk nær af einhverjum ástæðum ekki að skila í dag, þá hvetjum við fólk til að gera það sem fyrst. Áhættan við að skila of seint er í rauninni möguleikinn á því að það verði áætlað. Það er svolítil fyrirhöfn fyrir fólk að vinda ofan af því. Þannig að við hvetjum fólk til að reyna að halda sig innan þessara tímamarka.“

Íslandsbankabréfin skráð sjálfkrafa

Sem áður segir eru langflestar upplýsingar forskráðar á framtalið og fæstir þurfa mikið að gera áður en framtalinu er skilað.

„Þetta er meira bara yfirlestur hjá fólki. En ef það hafa orðið einhverjar, til dæmis, breytingar á eignum, hvort sem er fasteignum eða hlutabréfum eða einhverju slíku, þá þarf fólk að færa það sjálft inn. Eins ef fólk er með leigutekjur, leigugjöld, það eru ákveðnir hlutir sem enn þá þarf að fylla út en langmest er áritað.“

Einhverjir þeirra 230 þúsund sem skilað hafa framtali, allt að þrjátíu þúsund, gætu hafa tekið eftir nýbreytni við skilin í ár. Kaup í útboði ríkisins á eftirstandandi hlut þess í Íslandsbanka í fyrra færðust nefnilega sjálfkrafa inn í framtalið.

Er ekki nýtt að það komi sjálfkrafa inn?

„Jú, það var skemmtilegt. Þetta er í fyrsta skipti sem við áritum kaup á hlutabréfum og það liggur í því að við fengum upplýsingar beint frá Íslandsbanka, um þá sem keyptu í útboðinu og fyrir hversu mikið.“

Svara eitthvað fram eftir

Að lokum segir Helga Lilja lendi fólk í vandræðum með framtalið sé hægt að fá ráðgjöf hjá Skattinum. Í dag er föstudagur og því lokar síminn hjá Skattinum klukkan 14 en hún segist gera ráð fyrir því að tölvubréfum verði svarað eitthvað fram eftir degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×