Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Kjartan Kjartansson skrifar 13. mars 2026 14:42 Vivian Motzfeldt hefur verið utanríkisráðherra grænlensku landsstjórnarinnar og meðal annars fundað með Bandaríkjamönnum til þess að reyna að lægja öldurnar. Vísir/EPA Siumut-flokkurinn er hættur þátttöku í landsstjórn Grænlands vegna ágreinings við samstarfsflokkanna sem tengast yfirvofandi þingkosningum í Danmörku. Vivian Motzfeldt sem mikið hefur mætt á sem utanríkisráðherra undanfarið hverfur þannig úr ríkisstjórnin.
Ágreiningurinn innan landsstjórnarinnar stafar af óánægju Alequ Hammond, sem sneri nýlega aftur sem leiðtogi Siamut eftir að spillingarmál felldu hana, með að tveir ráðherrar hinna flokkanna hafi ekki sótt um leyfi frá störfum á meðan þeir taka þátt í kosningabaráttu fyrir þingkosningar í Danmörku sem fara fram síðar í þessum mánuði. Hammond hafði ítrekað hótað því að slíta stjórnarsamstarfinu vegna málsins, að sögn danska ríkisútvarpsins. Hún bar sigurorð af Motzfeldt í leiðtogakjöri í fyrra. Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, segist skúffaður með ákvörðun Siamut en að hann virði hana. Motzfeldt hefur verið áberandi í landsstjórninni vegna ásælni Bandaríkjastjórnar í Grænland. Hún ferðaðist meðal annars til Washington-borgar með Lars Løkke Rasmussen, dönskum starfsbróður sínum, til þess að reyna að lægja öldurnar, með takmörkuðum árangri þó. Fræg mynd náðist af þeim eftir fund með bandarískum ráðamönnum þar sem þau höfðu bæði kveikt sér í líkkistunöglum. Siamut hlaut sína verstu útreið í sögunni í kosningum til landsstjórnar fyrir ári. Hann tók engu að síður þátt í nokkurs konar þjóðstjórn fjögurra flokka eftir kosningabaráttu og kosningar sem hótanir Bandaríkjastjórnar um mögulega innlimun eyjunnar vörpuðu skugga á.
Grænland Danmörk Þingkosningar í Danmörku Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Kosningar á Grænlandi Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira