„Ekkert bendi til þess að það sé raunin“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar 15. mars 2026 13:00 Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins hefur lýst þeirri skoðun sinni að að ekkert bendi til þess að Ísraelar ætli að fremja þjóðarmorð í Palestínu. Síðan segir hann: „Hafi sú verið raunin, þá hefur þeim gengið afskaplega illa með það“. Lesið þessa setningu aftur; Að Ísrael hafi gengið illa með sitt þjóðarmorð - að það sé ekkert þjóðamorð! Meðal samtaka sem hafa lýst stríði Ísraels gegn Palestínu sem þjóðarmorði eru: Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðinga, Lemkin-stofnunin til varnar þjóðarmorði, Genocide Watch, Amnesty International, Human Rights Watch, B´T Selem, Læknar án landamæra og Óháð alþjóðleg rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin. Sigmundur Davíð segir einnig að hermenn Ísraels „reyna að hlífa almennum borgurum.“ Ísraelsher segir í sínum skýrslum að 83% þeirra sem þeir hafa drepið á Gaza eru almennir borgarar. En Sigmundur Davíð veit betur eins og alltaf og það er ekki þjóðarmorð í hans bókum að drepa vísvitandi almenna borgara. Sigmundur Davíð horfir framhjá þeirri staðreynd að Ísraelar hafa drepið tugþúsundir með sprengjuregni, skothríð og sveltistefnu, að Ísraelar hafa eyðilagt að mestu sjúkrahús og heimili Gazabúa og að ísraelskar leyniskyttur hafa drepið hundruð barna. Þetta heitir í túlkun Sigmundar Davíðs að „reyna að hlífa almennum borgurum.“ Hann, fyrrverandi forsætisráðherra, þykist ekki vita hvað þjóðarmorð er og heldur að hann geti túlkað hluti fram og aftur að eigin geðþótta líkt og í öðrum málum sem hann fjallar um. Hugtakið þjóðarmorð (e. Genocide) heitir hópmorð í íslenskum lögum og varð til í eftirleik heimstyrjaldarinnar sem lauk 1945. „Lög um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði“ tóku gildi hér á landi 2018. Skilgreining laganna á hópmorði er sú sama og er í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948. Eftirtaldir verknaðir teljast hópmorð þegar þeir eru framdir í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúflokki sem slíkum:a. að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi,b. að valda einstaklingum úr viðkomandi hópi alvarlegum líkamlegum eða andlegum skaða,c. að þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans,d. að beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum,e. að flytja börn með valdi úr hópnum til annars hóps. Hernaður Ísraels á Gaza uppfyllir öll þessi atriði. Þeir hafa drepið fleiri en 75,000 Gazabúa og þar af 70% börn og konur. Hundruð þúsunda eru særð og mörg þúsund hafa dáið sökum matarskorts og skorts á lyfjum og heilbrigðisþjónustu. Ísrael hefur drepið hundruð lækna og hjúkrunarfólks og eyðilagt sjúkrahús. Allt er þetta gert „af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans.“ og „koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum.“ Ísraelsher hefur fangelsað hundruð palestínskra barna og sett þau í pyntingarbúðir. Það er til fólk, jafnvel hér á landi, sem afneitar helför nasista gegn gyðingum. En slíkt gerir engin manneskja með siðferðiskennd og heilbrigðan hug. Nú fetar Sigmundur Davíð þessa slóð. Mikil er skömm hans. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar