Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 18:53 Ófært er víða og fjöldi bíla hefur farið út af veginum í dag. Vísir/Vilhelm Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar.
Þung hríð skekur nú Norðurland og Norðvesturland en Vegagerðin biður vegfarendur um að kynna sér aðstæður og veðurspá áður en lagt er af stað en gular veðurviðvaranir eru í gildi á norðvesturhorninu til klukkan 23 í kvöld, samkvæmt Veðurstofu Íslands. Hellisheiðinni var lokað í dag vegna umferðaróhapps þar sem þrír voru fluttir á slysadeild eftir árekstur við rútu. Fyrr í dag var lokað fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss sem varð á Mosfellsheiði þegar rúta hafnaði fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu, eins og Vísir greindi frá í dag. Rútan við Þingvallaveg í dag.Vísir/Bjarni Nú greinir Vegagerðin frá því að rúta hafi einnig farið út af á Holtavörðuheiði á Norðvesturlandi og því sé þrenging á Hringveginum á heiðinni. Fleira segir ekki um slysið. Þá er hringvegurinn einnig lokaður milli afleggjarans að Hvammstanga og Víðigerðis meðan unnið er að því að losa bíla sem eru þar fastir. Farið verður í fylgdarakstur til að létta á röðunum sitthvoru megin við lokunina áður en almennri umferð verður hleypt á veginn, segir á umferðarvef Vegagerðarinnar. „Þetta er búið að vera annasamur sólarhringur, eða ekki einu sinni sólarhringur, frá miðnætti,“ segir Jón Þór Víglundsson hjá Landsbjörg í samtali við Vísi. „Mér sýndist að þetta væri að detta í á annað hundrað manns af okkar hálfu sem hafa komið að þessu.“ Jón Þór segir að björgunarsveitir hafi síðasta sólarhring meðal annars farið í útköll á Dynjandisheiði, Þverárfjallsvegi, Sandskeiði og við Bláfjallaafleggjara Auk þess sinnti björgunarsveitin rútunni sem fór út af á Mosfellsheiði og nú eru björgunarmenn í útkalli á Kollabúðaheiði á Vestfjörðum. Vegagerðin hefur þá aftur lokað Sigulfjarðavegi og Ólafsfjarðarmúla á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Frá Ólafsfjarðarmúla. Myndin er úr safni. Hættustigi var lýst yfir á Siglufjarðavegi klukkan 15.45 eftir að opnað hafði verið fyrir veginn í morgun þar sem mikil snjófloðahætta hefur verið á þeim slóðum síðustu daga. Sömuleiðis var hættustigi lýst yfir við Ólafsfjarðarmúla klukkan 16.50. Þá er óvissustig enn í gildi vegna snjóflóðahættu víða á Norðurlandi þar sem talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga í norðlægum áttum og hafa nokkur snjóflóð fallið, meðal annars á vegi. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði um hádegisbil í dag en það stöðvaðist þó talsvert ofan þjóðvegar. Flóðtungan virðist vera um tveggja metra þykk og hefur rofið með sér hríslur og annan gróður. Veðurstofan segir einnig að stórt snjóflóð hafi fallið úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í dag. Það hafi komið úr næsta gili norðan við hestahúsahverfið sem er norðan við munna Héðinsfjarðarganga. Ólafsfirðingar hafa verið beðnir um að takmarka umferð um hesthúsin vegna snjóflóðahættu.
Færð á vegum Snjóflóð á Íslandi Ísafjarðarbær Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Sjá meira