Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Kristján Már Unnarsson skrifar 16. mars 2026 20:32 Guðríður Eldey Arnardóttir er framkvæmdastjóri Samáls, samtaka álframleiðenda á Íslandi. Sigurjón Ólason Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið hærra í fjögur ár. Framkvæmdastjóri Samáls segir auknar tekjur íslensku álveranna skila sér út í samfélagið með einum eða öðrum hætti.
Nærtækustu skýringuna á hækkun álverðs segir Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls, vera ástandið við Persaflóa. „Á þessu svæði eru um það bil níu prósent af allri álframleiðslu í heiminum. Núna er bara óvissa hjá þessum fyrirtækjum með aðföng, bæði aðgengi að raforku og svo bara flutninga á súráli. Þannig að þau hafa bara verið markvisst að loka,“ segir Guðríður í kvöldfréttum Sýnar. Fyrir ári kostaði tonnið af áli í kringum 2.400 dollara tonnið. Um síðustu áramót fór verðið yfir 3.000 dollara, í síðustu viku yfir 3.500 dollara, en var í dag um 3.440 dollarar tonnið. Álverð undanfarna tólf mánuði var lægst í 2.400 dollurum tonnið en fór í síðustu viku yfir 3.500 dollara tonnið. Þegar þróunin undanfarin fimm ár er skoðuð sést að fara þarf fjögur ár aftur í tímann til að finna dæmi um svo hátt verð. Álverin þrjú á Íslandi eru hvert um sig með stærstu fyrirtækjum landsins. Saman skapa þau ríflega einn sjötta af útflutningsverðmætum þjóðarbúsins. „Það er bara skilgreint sem einn grunnatvinnuvegur þjóðarinnar ásamt raforkuframleiðslunni. Sannarlega þá er þetta mikilvæg grunnstoð í íslensku efnahagslífi,“ segir Guðríður. Frá ISAL í Straumsvík, álveri Rio Tinto.Sigurjón Ólason En hvaða þýðingu hefur hækkun álverðs hérlendis? „Afkoma atvinnulífsins bara almennt skilar sér alltaf út í samfélagið. Ef afkoman batnar hjá álverunum þá borga þau hærri skatta. Það skilar sér líka alltaf út í samfélagið með einhverjum öðrum hætti. Þau eru líklegri þá til að ráðast í fjárfestingar og svo framvegis, þannig að þetta er auðvitað bara jákvætt fyrir allt samfélagið.“ Álver Alcoa í Reyðarfirði.Vísir/Arnar Hérlendis eru það orkufyrirtækin sem eru stærstu viðskiptavinir álveranna, sér í lagi Landsvirkjun. „Nú tjái ég mig svo sem ekkert um raforkukaup álveranna. Þeir samningar eru allir meira og minna trúnaðarmál. En það segir sig sjálft að í þeim tilfellum þar sem raforkusamningar eru einhvern veginn háðir heimsmarkaðsverði á áli, þá hlýtur þetta að vera jákvætt,“ segir Guðríður. En er þetta bara tímabundin bóla eða gætu menn vænst þess að þetta verði viðvarandi hækkun? Frá Norðuráli á Grundartanga.skjáskot/Sýn Guðríður segir eftirspurn eftir áli hafa verið að aukast í heiminum um þrjú til fjögur prósent á ári. „Og álið er bara búið að skilgreina sig sem lykilhráefni í orkuskiptunum. Þannig að það auðvitað gerir það að verkum að á meðan að framboðshliðin er ekki alveg að fylgja eftirspurnarhliðinni þá er það svona frekar ávísun á hækkun heldur en hitt. En svo er þetta bara eins og með hrávörumarkað að það er bara óstöðugt verð yfirleitt á hrávörumörkuðum. Stundum hækkar það og stundum lækkar það,“ segir framkvæmdastjóri Samáls í frétt sem sjá má hér:
Áliðnaður Landsvirkjun Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Orkumál Orkuskipti Efnahagsmál Tengdar fréttir Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. 21. febrúar 2023 22:30 Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira
Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. 21. febrúar 2023 22:30