Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2026 13:53 Pétur Gautur á vinnustofu sinni, þar sem hann hefur verið lengi. Í gær mætti kona fyrir utan stofuna, gægðist inn og tók myndir. Hún telur eitthvað bogið við allar aðstæður og vill vita hvort þarna geti verið níðingur á ferð? vísir/ívar Pétur Gautur myndlistarmaður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann var, upp úr þurru, sakaður um barnaníð. Þetta gerðist á Facebook-síðunni „Áfram Stelpur!“ Pétur hyggst kæra þessar ásakanir enda varði þær við lög. „
Þetta er hrikalegt. Myndbirting og allt. Ég sé ekki þessa síðu en viðkomandi hefur sett tvær færslur þarna inn. Hún bauð mér ekki einu sinni að kynna mér málin,“ Í gær tók afastrákur Péturs eftir því að það var kona fyrir utan að taka myndir. Pétur Gautur kippti sér ekkert upp við það enda alvanur því að túristar stoppi fyrir utan vinnustofu hans. Sá átta til tíu ára strák labba inn til Péturs „Þetta var bara í gær um miðjan dag. Drengurinn býr í næsta húsi og er hér eins og kötturinn. Ég bara skil þetta ekki, sextugur karlinn að verða fyrir þessu. Ég hef verið með vinnustofu hér í mörg ár og drengurinn hefur hlaupið til mín síðan hann var fimm ára gamall. Hann hefur unun af því að koma hingað og teikna.“ Svo var honum gert viðvart um færslu á „Áfram stelpur!“ Pétur segist hafa hringt í lögregluna í morgun og tilkynnt þetta. „Ég er eiginlega að bíða eftir því að þeir hringi. Ég á að koma til þeirra og gefa skýrslu. Ég veit að dóttir mín talaði við „admin“ fyrir þessa síðu og bað hana að taka þetta út, þetta væri misskilningur, en ekki var orðið við því.“ Pétur Gautur ætlar að ef dóttir hans gat fundið út hver stýrir síðunni og hver skrifaði þá ætti lögreglan að geta fundið það út. „Og það er þá hægt að kæra hana því þetta er bannað með lögum. En þessar stelpur eru vitlausar, við að bjarga heiminum. Það er ömurlegt að verða fyrir þessu.“ Þetta er of klikkað til að kæra ekki Pétur Gautur segist ekki geta gert neitt annað en kært þennan áburð. Toska, hundur Péturs Gauts, er af svissnesku fjallahundakyni og stór.Aðsend „Þetta er of klikkað. Þetta eru of alvarlegar ásakanir,“ segir Pétur Gautur. „Hún talar um að hafa séð inn um dyrnar gamla dýnu á gólfinu með kodda?“ Það eigi sér eðlilegar útskýringar. „Þetta er bæli hennar Tosku minnar, sem er að verða 45 kíló, ekki orðin eins árs. Hún er dálítið stór. Hún lagði svo saman tvo og tvo og fékk út sex, í bókstaflegum skilningi. En þetta er leiðinlegt.“ Hundur Péturs Gauts er fjallahundur frá Sviss af Berner Sennenhund-kyni eða „Bernese Mountain Dog“ eins og þeir eru kallaðir í Ameríku. Og vilja helst alltaf liggja úti í frosti og snjó.
Lögreglumál Samfélagsmiðlar Reykjavík Myndlist Gæludýr Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira