Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. mars 2026 14:42 Kristnesspítali er í Eyjafjarðarsveit, um tíu kílómetrum sunnan Akureyrar. Sjúkrahúsið á Akureyri Niðurstöður sýnatöku hafa staðfest vöxt myglusveppa í hluta húsnæðis Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesi. Einni hæð hefur verið lokað.
Í byrjun mars var ákveðið að taka sýni í húsnæði Sjúkrahússinsu á Akureyri (SAk) á Kristnesi vegna gruns um að þar væru rakaskemmdir. Starfsfólk var byrjað að finna fyrir einkennum. Vöxtur myglusveppa var staðfestur með sýnatöku og fannst hann helst í rými starfsfólks, skrifstofum, fundaherbergjum og geymslum. Einnig fannst myglan í rými sem nýtt er í þjónustu við skjólstæðinga í stuttan tíma í einu. Ráðist var í sýnatökur víðar í byggingunni til að rannsaka umfang vandans, sem virðist vera hvað mestur á jarðhæðum. „Einni hæð hefur verið lokað vegna þessa og þjónusta flutt annað. Enn sem komið er hefur ekki verið tekin ákvörðun um að ráðist verði í frekari lokanir eða að draga úr þjónustu vegna þessa. Hins vegar hefur starfsfólk þurft að sýna mikla útsjónarsemi til að tryggja þjónustu á Kristnesi og fyrir það ber að þakka,“ segir í tilkynningu frá spítalanum. Endurhæfing og öldrunarlækningar Sjúkrahússins á Akureyri eru til húsa á Kristnesspítala sem er í Eyjafjarðarsveit. Um síðustu áramót var sjö daga plássi í endurhæfingu á spítalanum lokað vegna manneklu en manna þurfti átta stöðugildi til að halda starfseminni óbreyttri. Seinni hluta árs 2024 fannst einnig mygla í húsnæði sjúkrahússins sem er inni á Akureyri. Flytja þurfti hluta starfseminnar í annað húsnæði á meðan unnið var að viðgerðum.
Sjúkrahúsið á Akureyri Mygla Akureyri Heilbrigðismál Tengdar fréttir Breytingar á Kristnesi: Þyngir róðurinn sem sé nú þegar verulega þungur Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir verulegum áhyggjum þar sem loka á sjö daga plássi á Kristnesspítala um áramótin. Helmingi plássa hefur þegar verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir gríðarlegu álagi, sem kemur aðeins til með að aukast. Þau biðla til stjórnvalda að stíga inn í þar sem hagsmunir almennings séu í húfi. 3. desember 2025 11:16 Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Flytja þarf hluta starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri vegna myglu sem kom upp á rannsóknarstofu sjúkrahússins í vetur. Forstjóri segir breytingarnar ekki hafa áhrif á starfsemi sjúkrahússins. 11. júlí 2025 10:54 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira
Breytingar á Kristnesi: Þyngir róðurinn sem sé nú þegar verulega þungur Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir verulegum áhyggjum þar sem loka á sjö daga plássi á Kristnesspítala um áramótin. Helmingi plássa hefur þegar verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir gríðarlegu álagi, sem kemur aðeins til með að aukast. Þau biðla til stjórnvalda að stíga inn í þar sem hagsmunir almennings séu í húfi. 3. desember 2025 11:16
Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Flytja þarf hluta starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri vegna myglu sem kom upp á rannsóknarstofu sjúkrahússins í vetur. Forstjóri segir breytingarnar ekki hafa áhrif á starfsemi sjúkrahússins. 11. júlí 2025 10:54