Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Freyja Þórisdóttir skrifar 18. mars 2026 18:46 Nemendur hafa fengið stuðning vegna árásarinnar og munu þeir fá tækifæri til að tjá sig um málið áður en það telst fullafgreitt. Reykjavíkurborg Maður í annarlegu ástandi veittist að hópi ungmenna í Hlíðahverfinu á ellefta tímanum síðasta mánudag, 16. mars. Enginn er sagður alvarlega slasaður en brotaþolar hringdu í lögregluna sem kom fljótt á vettvang og handtók manninn.
Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við blaðamann fréttastofunnar. Hann segir karlmann hafa veist að hópi ungmenna og ógnað þeim með eggvopni. Voru að taka upp árshátíðarmyndband Í hverfishópnum „Hlíðar - besta hverfið!“ segir að hópurinn sem um ræðir hafi verið strákar úr 10. bekk Hlíðaskóla sem voru að taka upp myndband fyrir næstu árshátíð skólans. Þá hafi maður birst, sem virtist vera undir áhrifum vímuefna, og lamið einn úr hópnum. Hann hafi því næst hlaupið á eftir öðrum strák og ógnað honum með hníf. Þetta getur Unnar staðfest að mestu leyti. „Um klukkan tíu mánudaginn 16. mars var maður handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa veist að hópi ungmenna og ógnað þeim með eggvopni,“ segir hann. Þekkjast ekki Það virðist engin tenging á milli strákanna og gerendans en hann hafi verið í annarlegu ástandi og mjög líklega undir áhrifum vímuefna. Unnar segir engan vera alvarlega slasaðan í kjölfar árásarinnar en að minniháttar meiðsl hafi orðið þegar gerandinn beitti einn úr hópnum handafli. Berglind Stefánsdóttir, skólastjóri Hlíðaskóla, segir blaðamanni fréttastofunnar að hún geti ekki „staðfest nákvæmar aðstæður eða hverjir komu að atvikinu á þessu stigi, þar sem málið sé í höndum lögreglu“. Berglind, oftast kölluð Bettý, Stefánsdóttir tók við sem skólastjóri Hlíðaskóla árið 2020 en það er í fyrsta skipti í Evrópu, og hugsanlega í heiminum, þar sem heyrnarlaus manneskja er ráðin skólastjóri í skóla þar sem nemendur eru með heyrn.Vísir/Einar Hins vegar greinir hún frá því að skólinn hafi brugðist við með því að veita nemendunum stuðning, meðal annars með því að ræða atvikið við þá og leggja áherslu á öryggi þeirra og vellíðan. Þau hafi einnig hvatt til aukins „foreldrarölts“ svokallaðs en það sé hugsað til að efla öryggi í nærumhverfinu. Málið ekki fullafgreitt Berglind bætir því við að „með samstilltu átaki foreldra, skóla og samfélagsins alls getum við skapað öruggara umhverfi fyrir börnin okkar.“ Maðurinn var í haldi yfir nótt og var yfirheyrður á þriðjudaginn, 17. mars. Honum var síðar sleppt úr haldi en málið er ekki afgreitt að fullu. Það eigi eftir að gefa brotaþolum færi á að fara með málið lengra og tjá sig um það. Þetta segir Unnar um stöðu málsins að svo stöddu.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Sjá meira