Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Lovísa Arnardóttir skrifar 21. mars 2026 22:33 Hildur segir breytinguna vonandi ekki varanlega. Stefnt sé að því að koma 4. bekk aftur upp síðar þegar húsnæðismál skólans eru komin í lag. Samsett Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan.
Foreldrar barna skólans fengu póst í vikunni þar sem þeim var tilkynnt að alls hefði verið sótt um skólavist fyrir 148 börn en skólinn, ásamt færanlegum stofum, rúmi aðeins 120 börn. Vísað er til þess í pósti til foreldra að mikill kynjahalli sé í árgangnum og að það myndi hafa of mikil keðjuverkandi áhrif að leggja annan bekk skólans niður. „Við erum komin að þolmörkum nú þegar með 132 börn og þá eru öll rými fullnýtt og engin rými laus til að mæta sértækum þörfum og/eða í aðra kennslu,“ segir í póstinum. Þar segir að húsnæðiskostur skólans hafi um árabil verið áskorun. Færanlegum stofum hafi verið bætt við fyrir fjórum árum til að mæta samskonar vanda en það hafi átt að vera skammtímalausn þar til búið væri að byggja leikskólahúsnæði fyrir fimm ára börn. Stjórnendur hafi leitað lausna og niðurstaðan sé sú að leggja niður 4. bekk og næstelstu börnin, tólf drengir og þrjár stúlkur, sem eru fædd 2017, útskrifast í vor. Í póstinum segir að rökin séu tvíþætt fyrir þessari ákvörðun. Annars vegar vegna þess að um sé að ræða töluverða kynjaskekkju og hins vegar vegna þess að það myndi hafa meiri keðjuverkandi áhrif að vísa öðrum árgangi frá. Barnaskóli Hjallastefnunar í Hafnarfirði verður aðeins fyrir börn í 1. til 3. bekk á næsta ári. Hjallastefnan Ekki nýr vandi Hildur Sæbjörg Jónsdóttir, skólastjóri skólans, segir húsnæðisvanda skólans ekki nýjan af nálinni. Stjórnendur skólans hafi átt í samtali við bæjaryfirvöld frá því að skólinn opnaði fyrir rúmum fjórum árum. „Var þá brugðið á það ráð að fá leigð rými hjá Skátafélaginu Hraunbúum. Síðar voru teknar á leigu færanlegar kennslustofur til bráðabirgða á meðan enn var leitað leiða til að finna lausn á húsnæðisvanda skólans. Á sama tíma hefur aðsókn í skólann aukist og við gert okkar besta til að mæta öllum þeim fjölskyldum sem treysta okkur fyrir börnum sínum,“ segir Hildur. Þurftu að taka ákvörðun þegar innritun hófst Hún segir sveitarfélagið allan tímann hafa verið upplýst um þau skref sem stigin hafi verið og að bærinn hafi verið upplýstur fyrir mánuði síðan um óhjákvæmilega fækkun barna en engin niðurstaða fengist í málinu. Hún segir alveg skýrt að skólinn þurfi að starfa eftir reglum um öryggi og aðbúnað barna. „Nú hefur verið opnað fyrir innritun í grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar og þar af leiðandi var okkur ekki stætt á öðru en að taka sársaukafulla ákvörðun. Sú leið sem var farin var vel ígrunduð en mjög þungbær fyrir Hjallastefnuna og skólasamfélagið á Hjallabrautinni,“ segir hún. Hildur segist ekki vita til annars en að bærinn geti tekið við börnunum í sína skóla og geri viðeigandi ráðstafanir til þess. Börnin muni fá allt það svigrúm sem þau kjósa til að ræða málin og til að deila áhyggjum sínum og skoðunum. „Það er verklag sem við erum alltaf með að leiðarljósi, að eiga upplýst samtal við börnin. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við þau og heimsækja þá skóla sem þau munu fara í á næsta skólaári. Við erum mjög vön að undirbúa þá breytingu að flytjast í hverfisskóla því við gerum það árlega með 4. bekk,“ segir Hildur. Hún segir hvorki Hafnarfjarðarbæ eða Hjallastefnuna vilja að þessi breyting verði gerð varanleg. „Hins vegar hefur aðsókn aukist hratt á undanförnum árum og slík þróun er ekki auðleyst með tilliti til húsnæðismála, sérstaklega ekki á skömmum tíma. Því þarf að líta á núverandi aðstæður sem tímabundna lausn á meðan unnið er að varanlegri niðurstöðu,“ segir Hildur í svari sínu. Málið hafi dregist of lengi Hvað varðar húsnæðisvanda skólans og svör bæjarfélagsins segir Hildur að málið hafi dregist allt of lengi. „Við erum í þéttu samráði og samtali við aðila frá sveitarfélaginu, það er ekkert nýtt undir sólinni í þessum efnum. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar eru meðvitaðir um stöðu mála og við erum sameiginlega að leita farsælla leiða til þess að geta tekið á móti þeim börnum og barnafjölskyldum sem til okkar leita vegna þeirrar hugmyndafræði sem við vinnum eftir.“ Í skólanum er kynjaskipt skólastarf samkvæmt kynjanámskrá grunnur að öllu skólastarfi. „Ég er gríðarlega þakklát fyrir allar þær fjölskyldur sem treysta okkur og velja Barnaskólann í Hafnarfirði því án þeirra værum við ekki til.“ Foreldrar ósáttir Foreldrar nokkurra barna sem hefur nú verið synjað um áframhaldandi skólavist sendu í vikunni minnisblað til fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar þar sem þessu er mótmælt. Þar segja foreldrarnir kynjahalla árgangsins hafa legið fyrir frá upphafi og sami vandi sé í öðrum árgögnum. Foreldrarnir segja að með því að leggja niður 4. bekk sé skólinn ekki að standa við þjónustusamning sinn við Hafnarfjarðarbæ og gagnrýna að um sé að ræða einhliða ákvörðun skólans. Foreldrarnir krefjast þess að börnunum verði tryggð áframhaldandi skólaganga næsta ár, að bærinn samþykki ekki þessa breytingu og að breytingar verði innleiddar í samráði við foreldra. Þá spyrja foreldrarnir hvort hverfisskólar barnanna séu tilbúnir til að taka við þeim og benda í því samhengi á að fyrir sé stór árgangur 2017 árgangs í Víðisstaðaskóla og að Skarðshlíðarskóli ætli ekki að innrita ný börn í 1. til 4. bekk á næsta ári. „Þessi ákvörðun Hjallastefnunnar hefur mikil áhrif á börn og fjölskyldur þeirra. Börnin voru innrituð í skóla sem gefur sig út fyrir að þjónusta börn frá 1. til 4. bekk. Þau gefa sig út fyrir ákveðna stefnu, fallegt samfélag og að það samfélag standi saman. Foreldrar og börn upplifa ekki að staðið sé með þeim og sitja foreldrar eftir með börn í mikilli vanlíðan sem skilja ekki af hverju þau mega ekki halda áfram í skólanum sínum á meðan rými er til að innrita yngri börn við skólann,“ segja foreldrarnir að lokum í bréfi sínu.
Skóla- og menntamál Hafnarfjörður Börn og uppeldi Jafnréttismál Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira