Byrjum á byrjuninni – Framboð, ekki bara fjármögnun Hilmar Halldórsson skrifar 20. mars 2026 16:27 Í gær, 19. mars 2026, var tilkynnt að starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi hefði tekið til starfa undir forystu Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þetta er gott skref og þörf hreyfing á málaflokknum. En ættum við kannski að staldra aðeins við og byrja á byrjuninni? Framboð á íbúðum þarf að stóraukast Það er einfalt lögmál að ef eftirspurn er langt umfram framboð þá hækkar verðið. Á Íslandi höfum við búið við krónískan skort á íbúðum áratugum saman. Til að snúa þessari þróun við dugar ekki að plástra kerfið; við þurfum að rífa niður þær hindranir sem hægja á uppbyggingu. Sveitarfélögin - Lóðir á kostnaðarverði Í dag eru lóðir oft seldar hæstbjóðanda eða á verði sem á að fjármagna aðra starfsemi sveitarfélaga. Þetta er í raun falinn skattur á íbúðarkaupendur sem hækkar íbúðaverð áður en fyrsta skóflustungan er tekin. Sveitarfélög verða að líta á lóðaframboð sem grunnþjónustu en ekki tekjustofn. Lóðir eiga að seljast á verði sem endurspeglar eingöngu raunkostnað við innviði (götur, lagnir o.fl.). Með því að fjarlægja hagnaðarvon hins opinbera af lóðunum lækkar grunnverð nýbygginga strax um milljónir króna sem gerir uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði raunhæfa. Takmarkanir á fjárfesta – Íbúðir eru heimili, ekki hlutabréf Það ríkir ójafnvægi á markaðnum þegar einstaklingar sem eru að kaupa íbúð þurfa að bjóða á móti fjárfestum sem eiga tugi eigna og hafa aðgang að ódýrara fjármagni. Setja þarf þak á fjölda íbúðaeigna í eigu sama aðila (fyrir utan viðurkennd leigufélög í almannaþágu) eða beita stighækkandi fasteignasköttum á íbúðir sem ekki eru nýttar sem lögheimili. Þetta dregur úr þrýstingi á eftirspurnarhliðina og tryggir að framboðið sem kemur inn á markaðinn rati til þeirra sem raunverulega ætla að búa í eignunum. Réttlæti í vísitölu – Húsnæðisliðurinn út Ísland er eitt fárra ríkja sem láta hækkun fasteignaverðs keyra upp höfuðstól íbúðalána í gegnum vísitölu neysluverðs. Þetta skapar sjálfvirkan vítahring: skortur hækkar verð, sem hækkar lán, sem hækkar greiðslubyrði. Taka þarf húsnæðisliðinn út úr vísitölunni strax. Neysluvísitala á að mæla verðlag á vörum og þjónustu, ekki verðmæti fasteigna. Þetta veitir heimilunum vörn gegn sveiflum á fasteignamarkaði og kemur í veg fyrir að fólk borgi sömu hækkunina tvisvar; fyrst í hærra kaupverði og svo í hærri lánum. Nýtt lánakerfi – Stöðugleiki til frambúðar Þegar búið er að hreinsa til í kerfinu og tryggja stöðugt framboð er jarðvegurinn tilbúinn fyrir nýtt lánakerfi eins og starfshópurinn undir forystu Ragnars Þórs er að skoða. Höfundur er ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar