„Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. mars 2026 15:35 Justin Timberlake á lögreglustöðinni. Samsett/AP Í júní 2024 var bandaríski poppsöngvarinn Justin Timberlake handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Fjölmiðlar vestanhafs hafa nú komist yfir myndefni úr búkmyndavél lögreglunnar frá handtökunni.
Um er að ræða tvö myndskeið sem fréttaveitan AP hefur birt en SAG Harbour lögreglan átti myndefnið. Lögfræðingar Timberlake reyndu að koma í veg fyrir að myndefnið yrði birt opinberlega og sögðu að birting þess myndi afhjúpa „náin, mjög persónuleg og viðkvæm smáatriði“. Þá myndi birtingin valda orðspori hans „alvarlegum og óbætanlegum skaða“ samkvæmt The Guardian. Á fyrra myndskeiðinu má sjá Timberlake í bílnum þegar lögreglan stoppaði hann. Hann var í Hamptons-hverfinu í New York-fylki Bandaríkjanna snemma morguns. Lögreglan stoppar Timberlake og segir að hann hafi keyrt yfir á hinn vegarhelminginn ítrekað og ekki stoppað við stöðvunarskyldu. Timberlake biðst afsökunar og aðspurður hvort hann sé með skjöl sem tengjast bílnum að þetta sé bílaleigubíll sem hann tók á leigu í nokkra daga. Lögreglumaðurinn, sem annað hvort gerði sér ekki grein fyrir því við hvern hann væri að ræða eða vildi ekki viðurkenna það, spyr í hvaða erindagjörðum Timberlake sé. Söngvarinn verður heldur vandræðalegur og segist vera á ferðlagi um heiminn (e. world tour) og spurður hvers vegna hann sé á slíku ferðalagi segir hann það erfitt að útskýra. „Heimsferðalagi, ég er Justin Timberlake,“ segir hann heldur vandræðalega eftir smá hik. „Hvað heitir þú?“ spyr lögreglan. „Justin Timberlake,“ svarar söngvarinn. „Þú ert Justin Timberlake? Ertu með skilríki?“ Vinkonan tilbúin að gera „hvað sem er“ Klippt er á myndskeiðið og má sjá lögreglumann útskýra fyrir söngvaranum hvernig hann eigi að framkvæma ákveðið próf, án efa fyrir lögregluna til að meta hvort hann sé undir áhrifum áfengis. Í miðri útskýringu stoppar Timberlake lögreglumanninn og segist einfaldlega hafa verið að elta vini sína heim. Hann byrjar síðan að framkvæma ýmisleg próf, svo sem að standa á öðrum fæti og labba hænuskref en sjá má á myndskeiðinu að hann er örlítið valtur. „Bara til að segja það, þetta eru mjög erfið próf,“ segir popparinn og tók fram að hann væri taugaóstyrkur. Að loknu prófinu segist lögreglan ætla að handtaka hann, setja hann í handjárn og inn í bíl. Aftur er klippt á myndbandið og er kona mætt á svæðið en gera má ráð fyrir því að hún sé vinkonan sem Timberlake var að elta. Vinkonan virðist forviða á því að lögreglan ætli að handtaka Justin Timberlake og segir þeim ítrekað að „hætta þessu“ og „nei“. Lögreglumennirnir segja henni ítrekað að þeir ætli með Timberlake upp á lögreglustöð og að hún geti sótt hann á morgun. „Getið þið hjálpað mér, gerið þið það? Getið þið gert eitthvað? Getið þið hætt, geriðið það? Ég skal gera hvað sem er,“ segir vinkonan og leggur mikla áherslu á einstaka orð. „Þið getið ekki farið með hann í fangelsi. Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Konan biðlar svo til lögreglumannanna og vísar í fræg lög söngvarans. „Ég er með símann hans, getið þið vinsamlegast gert mér greiða því þið elskuðuð Bye Bye Bye eða SexyBack, gerið mér einn greiða og leyfið mér að spyrja hann hvort hann vilji símann sinn,“ segir hún áður en myndbandinu líkur. Hneykslaður á lögreglustöðinni Í öðru myndskeiði sem AP birtir er söngvarinn mættur á lögreglustöðina og búið að handjárna hann við borð. Hann virðist utangátta og spyr lögreglumennina margra spurninga. Hann leyfir þeim ekki að taka blóðprufu til að meta ástand hans og segist ekki vilja valda neinum skaða. Hann flakkar á milli, fyrst um sinn segist hann kunna að meta að lögreglumennirnir séu að sinna starfinu sínu en efast svo. „Þið strákarnir eru að koma fram við mig eins og ég sé glæpamaður,“ segir hann. Farið er aftur yfir með honum hvers vegna lögreglan stöðvaði hann og skjöl sem hann þarf að skrifa undir. Í lokin er honum vísað inn í fangaklefa og sagt að hann verði þarna yfir nótt. „Ég á að vera hérna í alla nótt? Þið eru klikkaðir.“ Myndi þetta eyðileggja tónleikaferðalagið? Þremur mánuðum eftir að hann var handtekinn játaði Timberlake að hafa ekið undir áhrifum. Hann samþykkti að koma fram í tilkynningu í þágu almannaheilla um hættur ölvunaraksturs sem hluti af samkomulagi og var dómurinn því mildaður. Hann greiddi fimm hundruð dollara sekt, rúmar 62 þúsund krónur, starfaði 25 klukkustundir í samfélagsþjónustu og var sviptur ökuréttindum í níutíu daga. Timberlake kom fyrst fram á sjónarsviðið á tíunda áratug 20. aldar þegar hann fékk hlutverk í Disney-þáttunum The All New Mickey Mouse Club. Hann varð síðar meðlimur í geysivinsælu strákahljómsveitinni NSYNC en eitt þekktasta lag þeirra er Bye Bye Bye. Hljómsveitin lagði upp laupana árið 2002 en hefur komið nokkrum sinnum fram síðar, einu sinni án Timberlake. Hann hélt áfram að gefa út vinsæl lög á eigin vegum, til að mynda SexyBack, Mirrors og Cry Me a River. Timberlake hefur leikið í nokkrum kvikmyndum líkt og The Social Network og Friends With Benefits. Árið 2023 gaf hann út plötuna Everything I Thought it Was og var á tónleikaferðalagi þegar hann var handtekinn. Eftir handtökuna árið 2024 varð hann skotspónn og fullyrti slúðurmiðillinn Page Six að Timberlake hafi tjáð lögreglu að handtakan „myndi eyðileggja tónleikaferðlagið“ (e. ruin the tour). Á myndskeiðinu sem AP birtir heyrist tónlistarmaðurinn hins vegar ekki láta þau orð falla.
Bandaríkin Hollywood Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira