Skarsgård seiðandi senuþjófur Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. mars 2026 20:01 Alexander Skarsgard stal senunni í Berlín í fjólubláum Dior bol. Tristar Media/Getty Images Alexander Skarsgård hefur farið frumlegar leiðir í klæðaburði við kynningu á kvikmyndinni Pillion. Þar leikur Skarsgård aðalhlutverkið á móti Harry Melling í BDSM ástarsögu.
Þema myndarinnar hefur haft áhrif á klæðaburð Skarsgård undanfarna mánuði en það hristir vel upp í þeim tískubylgjum sem karlkyns leikarar hafa almennt fylgt. Litir og leður hafa sem dæmi verið vinsæl í fatavali hans og nú síðast rokkaði hann fjólubláan pallíettubol frá tískuhúsinu Dior þegar Pillion var frumsýnd á kvikmyndahátíð í Berlín. Það eru nefnilega til fleiri litir en svartur, hvítur, dökkblár og kannski dökkbrúnn þegar það kemur að klæðum karlmanna og jafnvel tímabært að fleiri stjörnur fari aðeins að ögra því óspennandi normi sem einkennir langoftast rauða dregilinn. Alexander Skarsgard glæsilegur í fjólubláum pallíettum.Tristar Media/Getty Images Bolurinn er hluti af haustlínu tískuhússins fyrir árið 2026 og sækir hönnuðurinn Jonathan Anderson innblásturinn til flapper tískunnar á þriðja áratug síðustu aldar, jafnan þekkt sem Cafe Society tískan í stórborgum á þeim tíma. Fataval Skarsgård vekur mikla lukku í tískuheiminum og móðir allra tískutímarita Vogue setti hann á lista yfir best klæddu karlmenn ársins 2025. Hér má sjá stiklu úr kvikmyndinni Pillion: Kvikmyndin er sýnd í Bíó Paradís en hér má nálgast nánari upplýsingar um sýningartíma.
Tíska og hönnun Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira