Óskað er eftir forystu í efnahagslegum þrengingum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar 24. mars 2026 08:32 Horfur í efnahagsmálum hafa ekki verið jafn dökkar um langt skeið eins og nú. Verðbólgan er þrálát og verðbólguvæntingar því miður langt yfir öllum viðmiðunarmörkum. Hagvaxtarhorfur eru á niðurleið og atvinnuleysi vaxandi. Mun fleiri stjórnendur fyrirtækja búa sig undir að fækka starfsfólki en þeir sem gera ráð fyrir að bæta við sig starfsmönnum. Vaxtalækkunarferlið sem grunnur var lagður að til langs tíma, með tiltölulega hóflegum kjarasamningum árið 2024, hefur ekki aðeins stöðvast heldur snúist við. Þeir kjarasamningar voru gerðir til að halda aftur af verðbólgu og vaxtahækkunum og til að ríki og sveitarfélög myndu styðja við barnafjölskyldur með hærri barnabótum og gjaldfrjálsum skólamáltíðum, halda aftur af gjaldskrárhækkunum hins opinbera og ráðast í öfluga uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Þrátt fyrir fögur fyrirheit núverandi ríkisstjórnar um að tryggja húsnæðisöryggi og ráðast í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis fyrir tekjulága, hefur staðið á efndum. Ila tímasettar gjaldskrárhækkanir og verðhækkanir opinberra fyrirtækja, til að mynda í orkuframleiðslu, eru líka þáttur í vaxandi verðbólgu. Á sama tíma leggur ríkisstjórnin ofuráherslu á að hækka ekki skatta á breiðustu bökin sem ekki myndi hafa sömu verðbólguáhrif. Þá vekur athygli að ríkisstjórnin kaus að aðhafast ekki þegar laun æðstu embættismanna hækkuðu um 5,7% en fyrri ríkisstjórn lagði til sérstök lög á Alþingi sem kváðu á um 2,5% launahækkun þessa hóps. Það var gert til að senda skýr skilaboð og draga úr verðbólguvæntingum. Auknar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti þegar verðbólgumælingar hafa verið hærri en það sem miðað var við undirritun kjarasamninga og ljóst að mörg þeirra loforða sem gefin voru þá, hafa ekki verið efnd af hinu opinbera, hvað þá af atvinnulífinu. Þungt ákall frá verkalýðshreyfingu Það er því ekki að furða að afar þungt er í forystufólki verkalýðshreyfingarinnar. Fyrir nokkrum dögum lýsti miðstjórn ASÍ yfir þungum áhyggjum af stöðunni í efnahagsmálum, kallar eftir aðgerðum stjórnvalda og segir stýrivaxtahækkun Seðlabankans vera áfellisdóm yfir efnahagsstjórn landsins. Þessu ber að taka alvarlega. Annað forystufólk launþegahreyfingarinnar hefur líka lýst yfir miklum áhyggjum. Á sama tíma og þetta ástand teiknast upp er vegið að réttindum launafólks með afnámi áminningarskyldu hjá opinberum starfsmönnum og félags - og húsnæðismálaráðherra mælti fyrir því í janúar að atvinnuleysisbótatímabilið verði stytt um næstum helming — á tíma vaxandi atvinnuleysis ! Stjórnvöldum ber að verja réttindi launafólks, hvað þá á óvissutímum í efnahagsmálum eins og núna og vinna að aðgerðum sínum með raunverulegu samráði við forystufólk á vinnumarkaði. Áberandi ráðaleysi Átakanlegast er þó ráðaleysi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem fór mikinn í upphafi kjörtímabilsins og boðaði með skeleggum hætti að nú yrðu kynnt betri plön í efnahagsmálum og öflug tæki til að berja niður vexti og verðbólgu. Hvorugt hefur litið dagsins ljós; fjármálaráðherra boðaði fyrst 27. febrúar að aðgerða væri alveg að vænta á næstu dögum. Engar mótvægisaðgerðir hafa enn komið fram. Þvert á móti hefur launþegahreyfingin og aðilar vinnumarkaðarins kvartað yfir samráðsleysi og fáum fundum við forystufólk ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin er greinilega fangi eigin hægri stefnu í efnahagsmálum og geldur þess líka að ekkert aðhald er frá vinstri flokkum inni á Alþingi. Stjórnarandstaðan gagnrýnir frá hægri, vill meiri niðurskurð og tekjuöflun er bannorð. Þetta elta ríkisstjórnarflokkarnir. Með þessu áframhaldi verður ríkisstjórnin og stefna hennar í efnahags- og ríkisfjármálum ekki lausn vandans, heldur hluti af honum. Auðvitað þarf að hafa skilning á áhrifum ytri aðstæðna, eins og glórulausum hernaði Ísraels og Bandaríkjanna á Íran og gagnaðgerðum þeirra sem veldur hækkandi heimsmarkaðsverði á olíu sem hefur bein áhrif á verðmælingar hér á landi. Það breytir því ekki að stjórnvöld verða að taka á undirliggjandi vanda og leita allra leiða til að halda aftur af áhrifum þessa á íslenskan almenning. Nú þarf kjark og þor til að byggja upp von Það sem nú þarf fyrir íslenskt efnahagslíf og kjör almennings er kjarkur og raunveruleg forysta. Ríkisstjórnin þarf að boða aðila vinnumarkaðarins til alvöru samstarfs um róttækar aðgerðir til að rétta kúrsinn og ná tökum á ástandinu áður en við siglum lengra inn í kreppuástand. Fyrirtæki og atvinnulífið þurfa líka að sýna ábyrgð og halda aftur af verðhækkunum á neytendamarkaði og nauðsynjavörum. Harðar aðhaldsaðgerðir eru ekki lykilinn núna. Þær búa til enn verra ástand sem bitnar verst á fólki í viðkvæmustu stöðunni. Það eru til aðra leiðir; Hægt er að koma fram með tímabundnar aðgerðir til að draga úr verðbólguþrýstingi af hálfu ríkisins eins og að lækka matarskatt tímabundið í eitt og hálft ár, úr 11% í 6%. Hægt er að fresta gjaldskrárhækkunum og kynna til leiks tekjuöflunaraðgerðir á borð við tímabundnar skattaaðgerðir á háar fjármagnstekjur þeirra sem græða á vaxtastiginu, aðilum sem eingöngu lifa á fjármagnstekjum væri gert að greiða sérstakt útsvar eða stóreignafólki gert að greiða hóflegan auðlegðarskatt. Aðgerðir af þessum toga í samstilltu átaki ríkisins og aðila vinnumarkaðarins væru til þess fallnar að gera hvoru tveggja í senn; taka stjórn á stöðunni og skapa aftur tiltrú og von í samfélaginu. Að auki þarf ríkisstjórnin að kynna til leiks sértækar aðgerðir til að mæta háu atvinnuleysi á ákveðnum landsvæðum en líka sértækar aðgerðir fyrir þjóðfélagshópa hvar atvinnuleysi mælist hæst. Þar má nefna hátt atvinnuleysi hjá fólki af erlendum uppruna sem hafa haldið uppi atvinnustigi og starfsemi í grunnatvinnuvegum eins og ferðaþjónustu, byggingariðnaði og umönnun og þjónustu. Þessum hópum þarf að mæta. Þörf á samstilltum aðgerðum Til viðbótar við tímabundnar aðgerðir, þarf líka ráðast í aðgerðir til lengri tíma; Fjárfesta þarf í markaðsátaki með ferðaþjónustunni sem hefur það skýra takmark að efla og styrkja sjálfbæra ferðaþjónustu og vinna gegn ytri aðstæðum sem hafa áhrif á olíukostnað og aðfangakostnað. Aðrar aðgerðir til langs tíma geta falist í að styðja við grunnrannsóknir, þróun og nýsköpun og þá helst við hugverkaiðnað og þekkingargreinar með sérstökum viðbótarfjárframlögum. Að auki þarf að kynna til sögunnar átak til að efla grænmetisframleiðslu og kornrækt sem eflir matvælaöryggi og eykur viðnámsþrótt landsins á óvissutímum þegar olíukostnaður hækkar óðum og kostnaður við aðföng líka. Langstærsta áskorunin í svona efnahagsástandi er samt fyrir venjulegt fólk sem glímir við hærri lánagreiðslur af húsnæðislánunum sínum um hver mánaðarmót og finnur fyrir verðhækkunum á nauðsynjavörum í veskinu sínu. Allra verst er þetta ástand fyrir þau sem hafa minnst á milli handanna og eru í viðkvæmustu stöðunni; lágtekjufólk og fólk í viðkvæmum hópum sem og ungt fólk sem er að koma upp þaki fyrir höfuðið. Þá hópa þarf að verja. Þar liggur raunveruleg ábyrgð yfirvalda. Höfundur er formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstri græn Rósa Björk Brynjólfsdóttir Efnahagsmál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun