Þungunarrof megi vera auðvelt val Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. mars 2026 13:02 Zara Larsson komst í klandur við þungunarrofsbrandara en stendur föst á sínu. Gilbert Flores/Billboard via Getty Images Sænska poppstjarnan Zara Larson komst í klandur hjá samstarfsaðilum sínum á samfélagsmiðlum þegar hún sagði þungunarrofsbrandara á TikTok. Hún stendur föst á sínum skoðunum og gagnrýnir þá hugmyndafræði að konur þurfi alltaf að þjást við það að fara í þungunarrof.
Á samfélagsmiðlinum TikTok koma fram alls kyns misskrýtin trend og á meðal þess er vinsælt að fara á tónleika og segja frá því að viðkomandi hafi stuttu síðar farið í þungunarrof. Aðdáandi Zöru Larsson birti slíka færslu og sagði að ófætt fóstrið hefði í það minnsta fengið að hlusta á Zöru Larsson áður en aðdáandinn fór í þungunarrof. @honeyhazelwood a never ending midnight baby #fyp #xyzabc #viral #midnightsun #zaralarsson @Zara Larsson ♬ midnight sun - lattegirl 🎬 Zara svaraði myndbandinu og sagðist hafa „kill-að“ eða rústað frammistöðu sinni áður en aðdáandinn „kill-aði“ eða eyddi fóstrinu. Margir brugðust illa við þessu gríni hjá sænsku stjörnunni og segist hún meðal annars hafa misst þriggja milljón dollara samning við ónefnt merki. Hún stendur föst á yfirlýsingu sinni og stendur með því vali að geta farið í þungunarrof. „Afhverju finnst ykkur þungunarrof bara í lagi þegar það er rosalega erfið ákvörðun? Eða bara þegar það er eitthvað sem kona þarf að ströggla við að ganga í gegnum, þegar það er andlega eða líkamlega erfitt?“ spurði Zara í færslu sem tímaritið Glamour birti á samfélagsmiðlum. Chloe Grace Laws blaðamaður Glamour tekur undir yfirlýsingu Zöru og segir að það sé mikilvægt að þungunarrof séu samfélagslega samþykkt. View this post on Instagram A post shared by GLAMOUR UK (@glamouruk) „Þannig drögum við úr þeirri hugmynd að þau séu siðferðislega röng. Það getur verið auðveld ákvörðun, það getur verið leiðinlegt og það getur auðveldað fólki lífið. En það eru ekki þungunarrofin sem feðraveldissamfélagið vill að við förum í. Slíkt samfélag vill að konur þjáist. Þess vegna finnst mörgum þægilegra að „leyfa“ þungunarrof ef manneskja hefur orðið fyrir kynferðisbroti en ef manneskja einfaldlega vill ekki eignast barn. Þjáning kvenna er samfélagslega samþykktari en réttur þeirra til að ráða yfir sér. Þangað til að sú hugmyndafræði breytist munum við ekki upplifa jafnrétti.“ Bakslagið við brandara Zöru Larsson virðist ekki hafa fengið hana til að ritskoða sig meira. Hún er óhrædd við að gagnrýna og grínast og lét það ekki á sig fá að missa þriggja milljón dollara samning. „Ef þú ert ekki sammála mér í því að konur eigi að hafa aðgang að þungunarrofi eða það megi ekki tala um það á léttum nótum þá eigum við ekki að vera í samstarfi,“ sagði hún í viðtali á TikTok. Frægðarsól Zöru reis hátt í fyrra eftir nokkur ár í lægð og spila samfélagsmiðlar þar veigamikið hlutverk. TikTok dansar við lagið hennar Lush Life sem kom út árið 2015 gerðu það að verkum að lagið skaust aftur upp á vinsældarlista tíu árum síðar. Þá á hún eitt vinsælasta lagið í Bandaríkjunum í dag, Stateside þar sem hún syngur með súperstjörnunni PinkPantheress.
Hollywood Tónlist Svíþjóð Þungunarrof Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira