Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Jakob Bjarnar skrifar 25. mars 2026 10:51 Ragnar Freyr læknir og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra með stórt fjöregg. Meðan starfsmenn Landspítalans fá ekkert páskaegg gera ráðherrar sér glaðan dag. vísir/ívar/sigurjón Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg.
Ragnar Freyr tengir við Spítalapúls í Facebook-færslu um málið og veltir því háðskur upp hvort það standi til að fjalla um „stóra páskaeggjahallærið“ í næsta spítalapúls. „Hefði verið nær að fækka aðeins síðunum þar og splæsa í nokkur páskaegg?“ spyr Ragnar Freyr og segir þá: „Þvílíka forgangsröðunin!“ Hafa fengið Freyjuegg númer fjögur en nú ekkert Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að starfsmenn Landspítala fái ekki páskaegg í ár líkt og verið hefur undanfarin ár. Er þetta gert til að mæta þriggja til fjögurra milljarða króna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnarinnar á spítalann. Landspítalinn er stærsti vinnustaður landsins en þar starfa yfir sex þúsund manns. Þeir hafa alla jafna fengið páskaegg númer fjögur en nú ekkert. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra glaður með stórt páskaegg í fanginu.vísir/sigurjón Vísir setti sig í samband við Andra Ólafsson samskiptastjóra Landspítalans. Hann sagði nú ekki mikinn kostnað því samfara að gefa út Spítalapúlsinn, hann kosti ekkert og sé gefinn út sem pdf-skjal. Í einstaka tilfellum séu prentuð tvö hundruð eintök og dreift á deildirnar. Vísir fékk ábendingar frá starfsfólki Landspítalans þess efnis að Spítalapúlsinn sé gefinn út á prenti. Andri segir Púlsinn hafa verið gefinn út mánaðarlega í tvö ár og í einstaka tilvikum séu prentuð 200 eintök og dreift á deildirnar. Það hafi verið gert tvisvar á síðustu tólf mánuðum. En hann vissi ekki neitt um stóra páskaeggjahallærismálið og ætlaði að finna einhvern hjá mannauðsdeild, sem tók ákvörðun um þetta og hefði frekari upplýsingar. En Vísir hefur ekkert heyrt frá Andra nú í tvo daga. Súkkulaðimolunum misskipt Meðan vex gremjan. Kristín Huld Haraldsdóttir læknir á Landspítalanum segir nú ljóst að þar fái starfsfólk ekkert páskaegg að gjöf en undanfarin ár hafi miðlungsegg frá Freyju verið gefið. „Á LSH vinnur mikið af einstaklingum í láglaunastörfum, ungir einstaklingar með börn, hópar þar sem munar um að fá egg sem gleður. Fyrir marga væri það búbót. Freyjuegg er meira að segja ódýrari kostur en margir. EN í heilbrigðisráðuneytinu var páskaeggjaleit fyrir starfsfólk í dag. Ekki Freyjuegg í boði heldur Nói Siríus. Molunum er misskipt á opinberun stofnunum! Ótrúlegt vægast sagt,” skrifar Kristín Huld og á erfitt með að leyna gremju sinni. Og þau í ríkisstjórninni láta ekki páskaeggjahallærið á Landspítala spilla gleði sinni. Ráðherrar hafa með sér páskaegg heim. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra lét sig ekki muna um að gefa samráðherrum sínum egg á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, svokallað fjöregg sem ráðherrarnir þáðu vitaskuld með þökkum. Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum um útgáfu Púlsins.
Landspítalinn Páskar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Sjá meira