Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Árni Sæberg skrifar 25. mars 2026 17:10 Jón Pétur sýnir þingheimi það sem hann hafði föndrað í ræðustól. Vísir Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætti með barnabók í ræðustól Alþingis, sem hann sagði meðal annars innihalda sögurnar Pirruðu skattatröllin og Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu, í dag. Forseti þingsins minnti hann á að á Alþingi tjái þingmenn sig í orðum, ekki með leikmunum.
Ræða Jóns Pétur undir liðnum störf þingsins í gær vakti nokkra athygli en þá virtist hæðast að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra með því að setja sig í spor vinsæls menntaskólanema. „Vita þau ekki að þetta er skólinn minn? Sumir segja að ég sé stjórnlyndur en, með leyfi virðulegs forseta: Döh. Það er ekki mér að kenna að ég viti allt miklu betur en þið, ég meina, ég var yfir sjoppunni á böllum í grunnskóla,“ sagði Jón Pétur meðal annars. Meiri hlutinn hafi snúið frumvarpi á hvolf Störfin voru aftur á dagskrá þingfundar dagsins og Jón Pétur lét sig ekki vanta í ræðustól. Hann gerði umræður um frumvarp um vegabréfsáritanir, sem stóðu yfir langt fram á gærkvöld, að umræðuefni sínu. „Í gærkvöldi ræddum við vegabréfsáritanir. Frumvarpið gekk út á að auka fjölda ferðamanna frá löndum utan Schengen þannig að utanríkisráðuneytið myndi fá á endanum meira í kassann. Með einu handtaki breytti meiri hlutinn markmiðum frumvarpsins þannig að það átti að snúa málinu á hvolf og fækka ferðamönnum í stað þess að fjölga þeim, hreinn viðsnúningur. Sérstök vinnubrögð,“ sagði hann. Þar vísaði hann til breytingartillögu meiri hluta utanríkismálanefndar á frumvarpi utanríkisráðherra um vegabréfsáritanir. Í frumvarpinu segir að markmið þess séu eftirfarandi: „Markmið laganna er að tryggja skilvirka og samhæfða framkvæmd við útgáfu vegabréfsáritana í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna aðildar að Schengen-samstarfinu. Jafnframt er það tilgangur laganna að laða erlenda ferðamenn til landsins samhliða tryggri landamærastjórn og skilvirkri framkvæmd landamæravörslu.“ Breytingartillagan miðar meðal annars að því að skipta út setningunni um að laða að erlenda ferðamenn. Markmiðin verði þess í stað eftirfarandi: „Markmið laganna er að tryggja skilvirka og samhæfða framkvæmd við útgáfu vegabréfsáritana í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna aðildar að Schengen-samstarfinu. Jafnframt er það tilgangur laganna að stuðla að tryggri landamærastjórn og skilvirkri framkvæmd landamæravörslu.“ Buffhamarinn sem hélt að hann væri sleggja Þá venti Jón Pétur kvæði sínu í kross og sagðist vera með ævintýrabók í höndunum og að öll ættum við að huga að lesskilningi, sérstaklega yngstu kynslóðarinnar. Ef hann fletti í bókinni sæi hann að í henni væri sígildar sögur á borð við Nýju fötin keisarans og Hans klaufa. „En það má líka finna nútímalegri sögur á borð við Pirruðu skattatröllin, Frú verðbólga og Herra vextir — ávallt aufúsugestir, Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu, og Buffhamarinn sem hélt að hann væri sleggja. En með einu handtaki get ég breytt titli sögunnar eins og gerðist í gær með frumvarpið um vegabréfsáritanir. Ég sé það að hér er ævintýrasaga og nafnið á í raun kannski betur við núna: Raunasaga Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Þannig að hér erum við með ævintýrabók sem er vissulega skemmtileg og ég hvet sem flesta til að skoða innihaldið,“ sagði Jón Pétur og sýndi þingheimi ævintýrabókina, sem hann hafði límt nýja titilinn framan á. Að lokinni ræðu Jóns Péturs stóð Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, og kvaddi sér hljóðs. „Forseti vill taka fram við háttvirta þingmenn að í þessum sal tjá þingmenn sig með orðum í ræðustól en ekki með fylgihlutum, það er bannað.“
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira