Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 25. mars 2026 21:51 Ása Berglind segir framkomu Jóns fjandsamlega. Vilhelm/Anton Brink Forseti Alþingis skammaði Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins þegar hann truflaði ræðu Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur um börn hælisleitenda með framíköllum í störfum þingsins í dag. Ásu Berglindi blöskrar framkoma Jóns.
Ása Berglind gerði umfjöllun Ríkisútvarpsins um aðbúnað barna umsækjenda um alþjóðlega vernd að viðfangsefni ræðu sinnar en umfjöllunin hefur vakið mikla athygli. Sjá einnig: „Við megum vera vond við börn“ Hún vakti í ræðunni athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Ísland lögfesti árið 2013. Í honum séu reglur um mannréttindi barna sem fullorðnu fólki beri að standa vörð um. „Virðulegi forseti. Við getum, við getum ekki tryggt velferð allra barna í þessum heimi, því miður. En við getum fjandakornið tryggt aðgengi allra barna, og þá meina ég allra barna á Íslandi, hvort sem þau eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eða fædd með silfurskeið í munni. Við getum tryggt þeim aðgang að leikskólum, tómstundum og frístundaheimilum,“ sagði Ása Berglind. Í miðri ræðu heyrast framíköll úr sal frá Jóni Gunnarssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins en ekki er ljóst hvað hann segir. Í framhaldinu grípur Þórunn Sveinbjarnardóttir inn í. „Ég ætla að biðja þingmanninn um að gefa ræðumanni hljóð og sýna virðingu þeim þingmanni sem er í ræðustól,“ sagði Þórunn. Þá hélt Ása Berglind ræðu sinni áfram. Í samtali við fréttastofu segist Ása Berglind heldur ekki hafa heyrt hvað Jón hefði haft að segja en segir hann hafa verið flissandi og dónalegan í framkomu. „Honum hefur liðið eitthvað illa,“ segir Ása Berglind. „Mér fannst þetta fjandsamlegt hjá honum, að þurfa að gjamma fram í þegar talað er um börn í viðkvæmri stöðu. Ég var ekki einu sinni að punda á Sjálfstæðisflokkinn eða neitt svoleiðis.“
Alþingi Hælisleitendur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira