Handa- og fótalaus en sakaður um morð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2026 21:31 Dayton James Webber sést hér á góðum degi en hann hafði vakið mikla athygli fyrir að afreka margt bæði handa- og fótalaus. @daytonwebber Atvinnumaður í baunapokakasti hefur verið ákærður fyrir morð en það sem gerir málið afar sérstakt er fötlun íþróttamannsins.
Hinn 27 ára gamli Dayton James Webber átti sögu sem flestir myndu kalla góða og hvetjandi dæmisögu um að allt sé hægt í íþróttum og lífinu. Hann fékk blóðsýkingu þegar hann var tíu mánaða gamall og læknar gáfu honum aðeins þriggja prósenta lífslíkur. Hann lifði af en missti alla fjóra útlimi sína í ferlinu. Þrátt fyrir að vera bæði hand- og fótalaus þá varð hann atvinnumaður í baunapokakasti, sá fyrsti í sögu bandarísku baunapokadeildarinnar sem er án handleggja eða fótleggja. View this post on Instagram A post shared by Brut (@brutamerica) Hann vann fylkismeistaratitilinn í Maryland. Hann kallaði baunapokakast köllun sína og lýsti sjálfum sér sem hvatningarfyrirlesara. Hann var hylltur sem lifandi sönnun þess að hver sem er getur sigrast á hverju sem er. Lenti í rifrildi við manninn í framsætinu En sú saga tók nú stefnu sem enginn sá fyrir. Að sögn lögreglustjórans í Charles-sýslu var Webber að aka með þrjá farþega um La Plata þegar hann lenti í rifrildi við manninn í framsætinu, hinn 27 ára gamla Bradrick Michael Wells. Í rifrildinu skaut Webber hann til bana. Hann lagði þá bílnum og bað farþegana tvo í aftursætinu að hjálpa sér að draga líkið úr bílnum. Þeir neituðu, fóru út úr bílnum, gengu í burtu og veifuðu til lögregluþjóns rétt fyrir klukkan 22:30. Ók á brott með Wells enn í bílnum Webber ók á brott með Wells enn í bílnum. Næstum tveimur tímum síðar hringdi íbúi við Newport Church Road í Charlotte Hall í neyðarlínuna eftir að hafa fundið lík í garðinum sínum. Lögreglan rak slóð bíls Webbers til Charlottesville í Virginíu, þar sem hún fann hann á sjúkrahúsi að leita sér lækninga vegna ótilgreinds heilsufarsvandamáls. Hann var handtekinn og bíður nú framsals til Maryland, þar sem hann á yfir höfði sér ákæru fyrir fyrsta og annars stigs morð. Hafa ekki útskýrt hvernig hann fór að þessu Lögreglan hefur ekki útskýrt hvernig Webber, sem er án handleggja og fótleggja, gat bæði ekið bíl og skotið af vopni. En myndband sem var hlaðið upp árið 2024 hefur farið í dreifingu á netinu, sem sýnir hann nota útlimastúfa sína til að hlaða og skjóta af skammbyssu á skotmark. View this post on Instagram A post shared by BBC News (@bbcnews)
Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Síðasti leikur Frakka fyrir HM Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Valskonur styrkja sig Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Hágrét þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skilja vináttuna eftir utan vallar Ollie Kane kynntur til leiks Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Skoraði sneggstu þrennu sögunnar í sturluðum sigri „Hann breytti kúlturnum“ Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Sjá meira