„Ef þú færð að vinna einn Íslandsmeistaratitil þá verður þú að falla líka“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 26. mars 2026 22:57 Óvissa ríkir um hvort Lárus haldi áfram með Þórsara. Jón Gautur Hannesson Þór Þorlákshöfn féll úr úrvaldsdeild karla í körfubolta í kvöld eftir tap gegn deildarmeisturum Grindavíkur. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var að vonum svekktur eftir leik en jafnframt stoltur af árangri félagsins síðustu ár. „
Ég vil byrja á að óska Grindavík til hamingju með deildarmeistaratitilinn. Þeir sóttu meira og þetta var eitthvernveginn bara leikurinn þeirra fannst mér,“ sagði Lárus eftir tap gegn deildarmeisturunum. „Þegar við vorum að hóta endurkomu þá fannst mér Pargo setja niður mjög erfið skot og þeir slökktu alltaf einhvern neista þegar við náðum þessi niður í 10 stig. Unnsteinn var líka á eldi hjá þeim, við reyndum okkar besta en þeir höfðu töluverða yfirburði.“ Lárus gerði upp tímabilið í stuttu máli og taldi það vera tímabil vonbrigða. „Þetta tímabil er búið að vera fyrir okkur tímabil vonbrigða. Það voru einhverjir leikir hingað og þangað sem maður getur talað um sem við hefðum getað unnið en töpum framlengingu.“ Óvíst er hvort Lárus muni stýra liðinu áfram en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. „Ef einhver hefði sagt við mig fyrir svona sex árum síðan að ef þú færð að vinna einn Íslandsmeistaratitil þá verður þú að falla líka, ég hugsa að ég hefði tekið því.“ „Með því að hafa unnið titilinn finnst mér við hafa sett ákveðinn standard hjá Þór. Þó að við höfum fallið núna þá er það eitthvað sem fólk býst við að við getum gert aftur, unnið titilinn. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það verði ekkert langt í það að Þór Þorlákshöfn fari aftur að berjast um það stóra.“ „Við þökkum kærlega fyrir okkur og við viljum sérstaklega þakka stuðningsmönnunum sem hafa stutt við bakið á okkur þrátt fyrir erfitt tímabil.“
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Kinu Rochford sagður myrtur Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Annar stórsigur strákanna á EM Strákarnir áfram í milliriðil á EM Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Nefndi nýja dýrategund eftir markverðinum Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Sjá meira