Svona stöðvum við hallarekstur ríkisins, loksins Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 27. mars 2026 08:31 Þegar ný ríkisstjórn tók við í árslok 2024 gerðu afkomuspár fjármálaráðuneytisins ráð fyrir viðstöðulausum hallarekstri ríkisins út þennan áratug. Sú staða er nú gjörbreytt. Á fyrsta starfsárinu lögfestum við stöðugleikareglu, seldum Íslandsbanka, gerðum upp ÍL-sjóð og lækkuðum ríkisskuldir um 7,5% af VLF, allt aðgerðir sem hafa endurspeglast í uppfærðum lánshæfishorfum og lánshæfiseinkunnum íslenska ríkisins. Nýja fjármálaáætlunin sem kynnt var í vikunni markar tímamót. Í fyrsta skipti um langa hríð er lögð fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir afgangi á hverju einasta ári tímabilsins. Hallarekstur ríkisins verður stöðvaður strax árið 2027. Þetta er mikilvægt, því eitt það besta sem stjórnvöld geta gert til þess að stuðla að lægri verðbólgu og lægra vaxtastigi er að passa upp á að fjármál ríkisins séu ekki þensluhvetjandi. Það kemur ekki til greina að kasta peningum á eftir verðbólgunni eða hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar sem færði okkur 10% verðbólgu og 9,25% vexti. Í staðinn herðum við á aðhaldsstigi ríkisfjármála. Samkvæmt fjármálaáætlun verður útgjaldavöxtur ríkisins sá langminnsti að raunvirði í mörg ár og langt undir 2% hámarki stöðugleikareglunnar. Þetta gerum við með því að skera upp herör gegn sóun og óskilvirkni í ríkisrekstri. Við höfum þegar fækkað ríkisstofnunum um 5% frá því að við tókum við stjórnartaumunum en gerum ráð fyrir að þeim fækki um samtals 15% á kjörtímabilinu. Um leið lokum við skattaglufum og sækjum auknar tekjur til fjármálageirans og af fénýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Við göngum hins vegar skemur í gjaldtöku vegna ökutækja heldur en síðasta ríkisstjórn boðaði í sínum fjármálaáætlunum. Þótt áætlunin sé aðhaldssöm gerir hún ráð fyrir svigrúmi til þjóðþrifaverkefna. Enda erum við ekki bara að reka ríkissjóð heldur líka samfélag. Þess vegna stóraukum við samgöngufjárfestingar um allt land og styrkjum heilbrigðiskerfið með fjármögnun nýrrar matsdeildar bráðamóttöku Landspítala, styttingu biðlista, eflingu sérnáms í heimilislækningum og stórfelldri fjölgun hjúkrunarrýma. Háskólastigið verður styrkt, fæðingarorlofskerfið lagfært og betur tekið utan um öryrkja og tekjulægra eldra fólk. Þetta er forgangsröðun Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Ábyrg ríkisfjármálastefna og kraftmikil velferðarpólitík í einum pakka. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Rekstur hins opinbera Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Þegar ný ríkisstjórn tók við í árslok 2024 gerðu afkomuspár fjármálaráðuneytisins ráð fyrir viðstöðulausum hallarekstri ríkisins út þennan áratug. Sú staða er nú gjörbreytt. Á fyrsta starfsárinu lögfestum við stöðugleikareglu, seldum Íslandsbanka, gerðum upp ÍL-sjóð og lækkuðum ríkisskuldir um 7,5% af VLF, allt aðgerðir sem hafa endurspeglast í uppfærðum lánshæfishorfum og lánshæfiseinkunnum íslenska ríkisins. Nýja fjármálaáætlunin sem kynnt var í vikunni markar tímamót. Í fyrsta skipti um langa hríð er lögð fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir afgangi á hverju einasta ári tímabilsins. Hallarekstur ríkisins verður stöðvaður strax árið 2027. Þetta er mikilvægt, því eitt það besta sem stjórnvöld geta gert til þess að stuðla að lægri verðbólgu og lægra vaxtastigi er að passa upp á að fjármál ríkisins séu ekki þensluhvetjandi. Það kemur ekki til greina að kasta peningum á eftir verðbólgunni eða hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar sem færði okkur 10% verðbólgu og 9,25% vexti. Í staðinn herðum við á aðhaldsstigi ríkisfjármála. Samkvæmt fjármálaáætlun verður útgjaldavöxtur ríkisins sá langminnsti að raunvirði í mörg ár og langt undir 2% hámarki stöðugleikareglunnar. Þetta gerum við með því að skera upp herör gegn sóun og óskilvirkni í ríkisrekstri. Við höfum þegar fækkað ríkisstofnunum um 5% frá því að við tókum við stjórnartaumunum en gerum ráð fyrir að þeim fækki um samtals 15% á kjörtímabilinu. Um leið lokum við skattaglufum og sækjum auknar tekjur til fjármálageirans og af fénýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Við göngum hins vegar skemur í gjaldtöku vegna ökutækja heldur en síðasta ríkisstjórn boðaði í sínum fjármálaáætlunum. Þótt áætlunin sé aðhaldssöm gerir hún ráð fyrir svigrúmi til þjóðþrifaverkefna. Enda erum við ekki bara að reka ríkissjóð heldur líka samfélag. Þess vegna stóraukum við samgöngufjárfestingar um allt land og styrkjum heilbrigðiskerfið með fjármögnun nýrrar matsdeildar bráðamóttöku Landspítala, styttingu biðlista, eflingu sérnáms í heimilislækningum og stórfelldri fjölgun hjúkrunarrýma. Háskólastigið verður styrkt, fæðingarorlofskerfið lagfært og betur tekið utan um öryrkja og tekjulægra eldra fólk. Þetta er forgangsröðun Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Ábyrg ríkisfjármálastefna og kraftmikil velferðarpólitík í einum pakka. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar