Íslenskir sálfræðingar í aldarfjórðung Pétur Maack Þorsteinsson skrifar 27. mars 2026 07:18 Háskóli Íslands útskrifaði fyrsta hóp sálfræðinga til starfsleyfis fyrir 25 árum, vorið 2001. Þá voru í landinu innan við 200 starfandi sálfræðingar. Í munnlegri geymd hafa varðveist flökkusögur um að einhverjir þeirra hafi verið uggandi yfir sínum hag þegar farið yrði að mennta sálfræðinga hér heima og fjölga þannig í stéttinni. Hvort sem þessar sögur eru sannar eða ekki þá reyndust allar áhyggjur óþarfar því að nú, kvartöld seinna, eru starfsleyfi sálfræðinga fleiri en 1.000 og enginn kvartar undan verkefnaleysi. Sálfræðin og sálfræðingar hafa sótt fram á fjölbreyttum vettvangi á undanförnum áratugum. Samhliða því hafa framboð og aðgengi að meðferð sálfræðinga batnað. Svo mjög að tala má um alger stakkaskipti. Þar nægir að benda á að á geðsviði Landspítala starfa nú yfir 100 sálfræðingar. Annað hundrað starfar í heilsugæslunni, bæði á heilsugæslustöðvum og geðheilsuteymum. Tæplega hundrað sálfræðingar eru í þjónustu sveitarfélaga í velferðarþjónustu og skólum. Stöðugildi í sjálfstæðri starfsemi sálfræðinga eru líklega ekki færri en 350. Mikilvæg endurhæfingarstarfsemi Grensásdeildar og Reykjalundar þætti í dag óhugsandi án sálfræðinga. Sálfræðingar hafa haslað sér völl í vinnuvernd og mannauðsmálum. Íþróttasálfræði er nýleg og vaxandi undirgrein sálfræðinnar. Svo mætti lengi áfram telja. Eins og sjá má eru íslenskir sálfræðingar sterk og öflug fagstétt. Ef horft er til þeirra heilbrigðisstétta sem telja fleiri en 200 manns, þá eru sálfræðingar líka sú heilbrigðisstétt sem er í örustum vexti. Þessi hraða fjölgun sálfræðinga væri óhugsandi án öflugra háskóla og vísindastarfs. Þar búa Íslendingar vel. Sálfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands í einu eða öðru formi frá 1911 og til BA prófs frá 1971. Auk fjölmennrar sálfræðideildar við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands eru í dag reknar sálfræðideildir við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík. Við allar deildirnar þrjár er öflugt vísindastarf og tugir íslenskra og erlendra meistara- og doktorsnema stunda nám við alla skólana. Til að mennta klíníska sálfræðinga þarf vísindafólk sérhæft í taugavísindum, hugfræði, félagssálfræði, þroskasálfræði, heimspeki, atferlisfræði, próffræði, persónuleikasálfræði, tilraunasálfræði, rökfræði, heilsusálfræði, tölfræði, líffæra- og lífeðlisfræði, aðferðafræði og fleiri greinum ásamt auðvitað klínískri sálfræði. Að sama skapi koma þjálfaðir sálfræðingar að menntun fjölda annarra fagstétta. Við erum rík af vísindamönnum í öllum þessum hópum. Enda er aðsókn í sálfræðinám svo mikil að aðeins innan við 20% þeirra sem sækja um framhaldsnám í klínískri sálfræði ár hvert fá inngöngu. Auk sálfræðideilda háskólanna eru sálfræðingar og vísindafólk með grunn í sálfræði að störfum við Menntavísindasvið HÍ, Íþróttafræðideild HR, Félagsvísindadeild HÍ, Læknadeild HÍ og víðar. Íslensk sálfræði og íslenskir sálfræðingar standa traustum fótum jafnt í akademíunni og úti á vinnumarkaði, opinberum sem almennum og eru virkir þátttakendur í innlendum og alþjóðlegum vísindarannsóknum. Sálfræðingar koma saman í dag á Sálfræðiþingi á Hótel Hilton Nordica. 45 erindi frá vísindafólki og starfandi sálfræðingum verða flutt í 12 málstofum. Heiðursgestur þingsins, dr. Paul Gilbert prófessor við háskólann í Derby á Englandi og upphafsmaður samkenndarmiðaðrar meðferðar, ávarpar þingið en áður bauð Sálfræðingafélag Íslands almenningi að hlíða á opinn fyrirlestur hans s.l. miðvikudagskvöld. Á fimmta hundrað sálfræðinga og annarra gesta sækja þingið sem er hið stærsta til þessa, hvort sem talin eru erindi eða gestir. Við sálfræðingar finnum að það er eftirspurn eftir kröftum okkar. Sú eftirspurn kemur meðal annars fram í því að stjórnvöld leita nú oftar til sálfræðinga við stefnumótun í heilbrigðis- og velferðarmálum en áður. Þar hefur núverandi ríkisstjórn m.a. sagst ætla að stórbæta aðgengi almennings að sálfræðimeðferð með því að efla niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu strax á þessu kjörtímabili. Engin landsýn er þó enn í þeim efnum en upphæðin sem Sjúkratryggingar Íslands verja til niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu á ári er 350 milljónir. Það samsvarar ársveltu einnar stórrar sálfræðistofu. Til samanburðar keypti VIRK starfsendurhæfingarsjóður þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga fyrir um 500 milljónir árið 2024. Sjúkrasjóðir stéttarfélaga eru þriðji stórkaupandi sálfræðiþjónustu sé litið á þá sem eina heild. Áætlanir benda til þess að sjúkrasjóðir greiði árlega yfir 500 milljónir vegna sálfræðiþjónustu. Þessar upphæðir fara hækkandi ár frá ári og staðfesta þannig vaxandi þörf almennings fyrir sálfræðiþjónustu. Hér verða Sjúkratryggingar Íslands, fyrir hönd Ríkisins, að gera miklu, miklu betur. Það er enginn bragur að því að af þessum þremur stórkaupendum sálfræðiþjónustu, Sjúkratryggingum, VIRK og sjúkrasjóðum launþega reki Sjúkratryggingar lestina með langlægsta framlagið. Til að bíta hausinn af skömminni eru Sjúkratryggingar erfiðari í samstarfi en VIRK eða sjúkrasjóðirnir. Markmið ríkisstjórnarinnar um bætt aðgengi að sálfræðiþjónustu eru metnaðarfull. Því fagna allir sálfræðingar. Ljóst er að þau markmið munu ekki nást án aðkomu og virkrar þátttöku sjálfstætt starfandi sálfræðinga og fyrirtækja þeirra. Þekkingin og þjónustan eru þegar til staðar en án raunverulegrar og almennrar kostnaðarþátttöku Sjúkratrygginga er ljóst að efnahagur og réttindi í sjúkrasjóðum munu áfram ráða mestu um aðgengi fólks að sálfræðiþjónustu. Sálfræðingar eru reiðubúnir til samninga, pólitískur vilji og þor er það eina sem vantar. Við vitum öll að það kostar peninga að veita góða sálfræðiþjónustu en það er líka vitað að sálfræðiþjónusta er hagkvæm og ábatasöm því að samfélagslegur kostnaður af þjónustuleysi er miklu, miklu, hærri en af því að veita þjónustuna. Göngum nú í þetta. Höfundur er formaður Sálfræðingafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Pétur Maack Þorsteinsson Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar