Sigurður Íslandsmeistari í snóker í fyrsta sinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. mars 2026 16:44 Sigurður Kristjánsson hefur verið einn besti snókerspilari landsins undanfarin ár en vantaði Íslandsmeistaratitilinn í safnið, þar til í dag. Sigurður Kristjánsson tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í snóker í fyrsta sinn.
Úrslitaleikur Íslandsmótsins fór fram á Billiardbarnum en þar mætti Sigurður ríkjandi Íslandsmeistaranum, Þorra Jenssyni. Þeir áttust við í úrslitum fyrir ári síðan og þar hafði Þorri betur en nú var komið að Sigurði sem fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli. Úrslitaleikurinn var bráðfjörugur og spennandi. Þorri byrjaði mjög vel og komst í 3-0 áður en Sigurður tók við sér. Það gerði Sigurður reyndar af fítonskrafti því hann vann næstu fjóra ramma og komst 3-4 yfir. Þorri svaraði hins vegar með því að jafna 4-4 en Sigurður var ekki hættur og komst í 4-6 og dugði því að vinna einn ramma í viðbót til að fagna sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli. Þorri byrjaði 11. rammann mjög vel og vantaði í raun bara herslumuninn á að vinna rammann. Sigurður svaraði hins vegar stórkostlega og var kominn yfir en forhleypti af svörtu og gaf því Þorra tækifæri á ný. Hann tók það og minnkaði muninn í 5-6. En í lokarammanum náði Sigurður fljótlega undirtökunum og þrátt fyrir að Þorri hafi ekki gefið neitt eftir, þá hafði Sigurður að lokum sigur og er því Íslandsmeistari í snóker 2026. Úrslitaleikurinn var einstaklega vel leikinn, fjögur stuð yfir 50 stig sem er ekki lítið þegar barist er um stærsta titilinn. Sigurður er vel að sigrinum kominn enda hefur hann verið einn af bestu snókerspilurum landsins undanfarin ár. Eina sem vantaði hjá honum er að koma höndum á Íslandsmeistaratitilinn en nú er sá sigur í höfn og sjálfsagt eiga titlarnir eftir að verða fleiri.
Snóker Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum „Við ætlum að vinna rest“ Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Enn með fullt hús Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Magnað mark dugði fyrir sigri Óvænt truflun í Njarðvík „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Dagskráin í dag: Risa leikir strax eftir landsleikjahlé Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Sjá meira