Ævintýraleg sigurkarfa Indiana-stráksins í Marsfárinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 08:30 Braylon Mullins í faðmi samherja sinna eftir ótrúlega sigurkörfu hans gegn Duke. getty/Brett Wilhelm Mörg ótrúleg skot hafa litið dagsins ljós í Marsfárinu, úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans, í gegnum tíðina. Eitt slíkt kom í leik Connecticut-háskólans og Duke í gær. Nýliði UConn skoraði þá ótrúlega sigurkörfu í þann mund sem leiktíminn rann út.
UConn varð háskólameistari 2023 og 2024 og getur nú unnið titilinn í þriðja sinn á fjórum árum, þökk sé mögnuðum tilþrifum Braylons Mullins gegn Duke í gær. Síðustu leikirnir í Marsfárinu fara fram í Indianapolis en Mullins, hetja gærdagsins, er frá Indiana. „Indiana-strákurinn sendi okkur til Indianapolis,“ sagði Alex Karaban sem átti stoðsendinguna á Mullins í sigurkörfunni. Silas Demary yngri minnkaði muninn í 70-72 af vítalínunni þegar tíu sekúndur voru eftir. Duke fór í sókn og Cayden Boozer fékk boltann við miðjuhringinn þar sem tveir leikmenn UConn sóttu að honum. Þeir komust inn í sendingu Boozers og boltinn barst til Mullins. Hann sendi hann strax á Karaban sem íhugaði að skjóta en gaf boltann þess í stað aftur á Mullins. Hann lét vaða af tæplega ellefu metra færi og boltinn fór ofan í þegar 0,3 sekúndur voru eftir af leiknum, 73-72. OH MY GOODNESS 😱UCONN LEADSSSS UNBELIEVABLE #MarchMadness pic.twitter.com/IPX2JWiw0b— NCAA March Madness (@MarchMadnessMBB) March 29, 2026 Fyrstu fjögur þriggja stiga skot Mullins í leiknum í gær geiguðu en það síðasta og mikilvægasta rataði rétta leið. Hann var handviss um að hann myndi hitta. „Fjandinn hafi það, já. Þú verður að vera með sjálfstraust,“ sagði Mullins sem er á sínu fyrsta ári í UConn. Duke var með pálmann í höndunum í leiknum í gær og náði mest nítján stiga forskoti í fyrri hálfleik. Þegar rúmar sex mínútur voru eftir var tíu stiga munur á liðunum. UConn gafst þó ekki upp og Tarris Reed yngri leiddi liðið áfram. Hann skoraði 26 stig, tók níu fráköst, gaf þrjár stoðsendingar, fjögur varin skot og þrjá stolna bolta í leiknum. Aðeins eitt af fyrstu átján þriggja stiga skotum UConn í leiknum fór ofan í en undir lokin hitnuðu Sleðahundarnir heldur betur fyrir utan. Mullins klippir netið í körfunni eftir leikinn.getty/Emilee Chinn Í undanúrslitum Marsfársins á laugardaginn mætir UConn Illinois. Í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast Arizona og Michigan við. Ef UConn stendur uppi sem sigurvegari í Indianapolis verður liðið það fyrsta í háskólakörfuboltanum síðan UCLA á 8. áratug síðustu aldar til að vinna þrjá titla á fjórum árum.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira