Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. mars 2026 12:06 Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu. vísir Mörg hundruð þúsund bækur enda í ruslinu á hverju ári samkvæmt sviðsstjóra samskipta- og þjónustusviðs Sorpu. Ýmsum sárnar að sjá meistaraverk stórhöfunda í ruslinu en hundrað þúsund bækur fara á sölu hjá Góða hirðinum á hverju ári. Framboð sé langt umfram eftirspurn neytenda og sviðsstjórinn býður Hallgrími Helgasyni í kaffi.
Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistarmaður, vakti athygli á því á Facebook-síðu sinni um helgina að meistaraverk eftir stórhöfunda á borð við Þórberg Þórðarson og Halldór Laxness enduðu gjarnan í endurvinnslugámum hjá Sorpu með pappa og öðru rusli. Færslan uppskar mikil viðbrögð og er óhætt að segja að fólk hafi sopið hveljur enda sárnaði þeim að sjá menningararf þjóðarinnar í ruslinu. Dropi í hafið Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjór samskipta- og þjónustusviðs Sorpu, segist skilja það vel að fólki finnist sýnin sorgleg. Raunveruleikinn sé þó sá að hundruð þúsunda bóka endi í ruslinu á ári hverju. „Framboðið á bókum sem er verið að henda er miklu meira en við önnum. Við hjá Sorpu tökum við bókum hérna inn í Góða hirðinn og ég held að það sé ekki mjög langsótt hjá mér að segja að Góði hirðirinn sé stærsta bókaúð landsins, því við seljum á bilinu 100 til 150 þúsund bækur á ári. Það er bara dropi í hafið því við fáum svona 400 til 500 þúsund bækur til okkar árlega.“ Miðað við tölur Gunnars má reikna út að í minnsta lagi sé 300 til 350 þúsund bókum því fargað á ári hverju. „Það er þá bara af þeim bókum sem fara í nytjagámana fyrir Góða hirðinn. Þá eru ótaldar þær bækur eins og Hallgrímur vakti athygli á um helgina sem fara bara beint í gáma fyrir pappír þegar gámarnir fyrir Góða hirðinn eru fullir. Hvert mannsbarn lætur okkur hafa eina bók á ári á hverju ári.“ Býður Hallgrími í kaffi Góði hirðirinn reyni eftir bestu getu að koma eins mörgum bókum og hægt er í endurnýtingu. Gunnar segir þau hjá Sorpu verulega opin fyrir því að leita leiða til að bjarga enn fleiri bókum. „Við sjáum að sjálfsögðu mikið eftir þessu því bækur endast í rauninni að eilífu og það er ekkert sem gerir það að verkum að það sé ekki hægt að nota þær aftur og aftur, sem er okkar höfuðmarkmið. Ef það er áhugi þarna úti á markaði hjá útgefendum eða einhverjum að nálgast bækur hjá okkur til gjafa eða til sölu og þá helst í svolítið miklu magni því við horfum á þetta í tonnum en ekki stykkjum, þá gæti það verið mjög áhugavert samtal.“ Hann segir það sorglegt að sjá hluti sem eru fullkomlega nothæfir ekki halda áfram í notkun. Hann fagnar umræðunni og vonar að fleira fólk leiti til þeirra í þeirri von að finna góða bók. „Þessar endurvinnslustöðvar eru staðir þar sem þú kemur til að losa sig við hluti en ekki endilega þar sem þú kemur til að sækja hluti. Upplifunin að sækja bók á endurvinnslustöð er ekki endilega gleðileg. Hún er miklu betri hér í Góða hirðinum þar sem við seljum hundrað þúsund bækur. Það væri gaman ef þeir sem setja bækur á markað, útgefendur og aðrir komi til liðs við okkur. Ætli ég þurfi ekki að bjóða Hallgrími í kaffi til að skoða hvernig við getum leyst þetta. Svo einhver geti tekið við þessum bókum. Það að henda þessu kostar samfélagið og kostar sorpu. Það væri mikill kostur ef þessar bækur færu aftur í samfélagið.“
Bókmenntir Sorpa Halldór Laxness Reykjavík Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira