„Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Árni Sæberg skrifar 30. mars 2026 13:57 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banki. Vísir/Vilhelm Bankastjóri Arion banka segir það „eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun svokallaðs bankaskatts árið 2020 í vasann, líkt og framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar fullyrti um helgina.
Í fjármálaáætlun sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í síðustu viku segir að ein margra aðgerða til þess að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs felist í því að afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum en fyrirtæki í þeim geira greiði sérstaka skatta sem lagðir eru á skuldir, laun og hagnað. Engar upplýsingar að fá nema í grein framkvæmdastjóra Hvergi í kynningu Daða Más né gögnum sem fylgja fjármálaáætlun er það tíundað hvernig standi til að afla þessara viðbótarskatttekna eða hversu mikilla tekna eigi að afla. Vísir óskaði fyrir helgi eftir svörum við ýmsum spurningum í þá veru og að sögn ráðuneytis Daða Más er svara að vænta í vikunni. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, ritaði aftur á móti aðsenda grein hér á Vísi á laugardag, þar sem fyrstu upplýsingarnar um boðaðar viðbótarskatttekjur af fjármálafyrirtækjum. „Þar er líka boðað að skattur á banka verði loksins hækkaður á ný. Það á að skila ríkissjóði um sex milljörðum króna í nýjar tekjur á næsta ári til að standa undir samneyslunni,“ skrifaði Þórður Snær. Sagði vaxtamuninn ekkert hafa hreyfst Þórður Snær sagði að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefði meðal annars nýtt ferðina í kórónuveirufaraldrinum til þess að lækka bankaskattinn. Forsvarsmenn íslensku bankanna hefðu kvartað yfir því árum saman að bankaskatturinn væri ósanngjarn, drægi úr samkeppnishæfni og gerði það að verkum að vaxtamunur, munurinn á þeim vöxtum sem bankarnir borga fyrir að fá peninga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána einstaklingum og fyrirtækjum fjármuni, væri miklu meiri á Íslandi en annars staðar. Bankaskatturinn hefði svo verið lækkaður myndarlega árið 2021 [það var gert árið 2020] úr 0,376 prósentum af heildarskuldum banka umfram 50 milljarða króna í 0,145 prósent án þess að vaxtamunurinn færðist neitt til. „Þess í stað stungu bankarnir þrír ávinningnum af skattalækkuninni í vasann. Þeir notuðu hann til að auka arðsemi sína, og hluthafa sinna, en áætlað hefur verið að skattalækkunin hafi minnkað skattgreiðslur bankanna þriggja um samtals tólf milljarða króna fyrstu þrjú árin eftir að hún tók gildi, og enn meira síðan þá.“ Benedikt svarar Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, svarar þessum skrifum Þórðar Snæs í aðsendri grein á Innherja í dag undir yfirskriftinni Staðreyndir um bankaskatt. „Nú stendur til að hækka skatta á fjármálafyrirtæki um 6 milljarða króna. Í umfjöllun um málið hefur því verið haldið fram að þegar bankaskattur var lækkaður úr 0,376 prósentum í 0,145 prósent hafi vaxtamunur ekki færst neitt til og bankarnir stungið ávinningnum af 12 milljarða skattalækkun í vasann. Þetta er eins rangt og það getur orðið.“ Vaxtamunurinn tæplega helmingast Lækkun bankaskatts hafi skilað sér í minni vaxtamun til einstaklinga, þökk sé öflugri samkeppni og miklum hreyfanleika á markaði með óbundin innlán og óverðtryggð íbúðalán. Seðlabankinn hafi benti á það í riti sínu Peningamálum í ágúst 2023 að vaxtaálag á ný óverðtryggð íbúðalán miðað við innlánsvexti hefði ekki verið lægra í þeirra gögnum, sem ná aftur til ársins 2015. „Þessi vaxtamunur var að meðaltali 3,2% frá 2015 til 2023 (bankaskattur var þá 0,376%), en hafði lækkað niður fyrir 2% í ágúst 2023 og hefur haldist á þeim slóðum síðan. Kannanir sýna að Íslendingar eru duglegri en aðrar Evrópuþjóðir að sækja í bestu kjör með því að færa inn- og íbúðalán sín milli fjármálafyrirtækja en 21% aðspurðra hér á landi höfðu skipt um þjónustuaðila sparnaðarinnlána síðastliðin 5 ár í könnun Gallup og 17% höfðu hreyft íbúðalánið sitt.“ Fyrirtæki innheimti skatta en borgi þá ekki Skattar á fjármálafyrirtæki hér á landi séu þegar tvisvar til þrisvar sinnum hærri en á Norðurlöndunum og í öðrum Evrópuríkjum vegna sértækra skatta. Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, sem gefin var út árið 2018, hafi komið fram að starfsumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja kynni að valda álagi á útlánavexti, svokölluðu Íslandsálagi, sem síðar hafi verið reiknað út að næmi um einu prósentustigi. „Fyrirhuguð hækkun upp á 6 milljarða króna eykur þetta álag. Það er erfitt að sjá rökin fyrir þessari séríslensku nálgun og kannski rétt að minnast orða Ronald Reagan: „Þú getur ekki skattlagt fyrirtæki. Fyrirtæki borga ekki skatta. Þau innheimta skatta.““
Arion banki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálafyrirtæki Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira