Handbolti

Varð lands­fræg á einni nóttu: „Hefur al­veg mótað mig í gegnum lífið“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lovísa Thompson leikur í dag með Val og hefur gert undanfarin ár. Hún sló hins vegar í gegn hjá Gróttu meðan hún var enn í grunnskóla.
Lovísa Thompson leikur í dag með Val og hefur gert undanfarin ár. Hún sló hins vegar í gegn hjá Gróttu meðan hún var enn í grunnskóla. sýn sport

Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára.

Mark Lovísu í fjórða leik Stjörnunnar og Gróttu um Íslandsmeistaratitilinn 2015 er til umfjöllunar í öðrum þætti Augnablikanna sem nefnist „Stjarna verður til.“

Þrátt fyrir að vera enn í 10. bekk var Lovísa í stóru hlutverki hjá Gróttu sem vann alla þrjá titlana sem í boði voru tímabilið 2014-15. Liðið tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í Garðabænum 12. maí 2015. Lovísa skoraði sigurmark Seltirninga í þann mund sem leiktíminn rann út.

„Þetta er kerfi sem heitir Köben, það átti að draga frá og ég held einmitt að ég hafi átt fara á en svo byrjar eitthvað klafs og við förum í smá panikk,“ sagði Lovísa er hún rifjaði þessa lokasókn leiksins fyrir ellefu árum upp.

Klippa: Augnablikin - Stjarna verður til

„Svo kom þetta mark hjá Lovísu upp úr þurru. Ég held að það hafi verið þrír varnarmenn á móti henni. Samt skýtur hún í varnarmannshornið og Flora átti í röð í hana jafnvel þótt hún væri frábær markvörður. Hún var komin í sitt horn og ætlaði að taka það,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem sneri aftur heim í Gróttu fyrir tímabilið 2014-15.

Smá ósanngjörn pressa

Lovísa segir að þetta augnablik hafi haft mikil áhrif á hana.

„Þetta hefur alveg mótað mig í gegnum lífið. Ég myndi alveg segja það. Að vera kannski þekkt nafn út frá þessu og finna fyrir aukinni pressu mikið út frá sjálfri mér en kannski líka eitthvað frá umhverfinu,“ sagði Lovísa.

„Ég held að þetta hafi mest komið frá mér sjálfri og það er kannski smá ósanngjörn pressa því þú ert ekki einn í handboltaliði. Þetta er liðsíþrótt og þetta á ekki að vera á einum einstaklingi.“

Lovísa hefur unnið fjölmarga titla á ferlinum, bæði með Gróttu og Val. Hún var meðal annars í sigurliði Valskvenna í EHF-bikarnum í fyrra. Þá hefur Lovísa verið lengi í landsliðinu og lék með því á EM á síðasta ári.

Innslagið úr Augnablikunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan og þáttinn í heild sinni má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sports.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×