Hraðbanki fyrir fjármagnseigendur? Bogi Ragnarsson skrifar 31. mars 2026 16:32 Í Silfrinu 30. mars 2026 var Guðmundur Steingrímsson spurður hvort hann væri orðinn bjartsýnni eftir viðtal við Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Svar hans var afdráttarlaust. Hann lýsti því hvernig húsnæðislánið hans hefði hækkað mánuð eftir mánuð, hvernig afborganirnar hefðu þyngst og hvernig honum liði eins og hann væri orðinn hraðbanki fyrir fjármagnseigendur í þessu landi. Þetta er sterk lýsing. En stenst hún þegar tölurnar eru skoðaðar? Til að varpa ljósi á málið var tekið raunverulegt dæmi af pari sem tók 63 milljóna króna verðtryggt húsnæðislán í febrúar 2023. Frá þeim tíma til loka tímabilsins greiddi parið samtals 7.343.504 krónur í vexti og verðbætur á vöxtum. Sú tala er í nafnkrónum. Sé hver greiðsla færð á verðlag í mars 2026 verður heildarkostnaðurinn hins vegar um 7,81 milljón króna. Auk þess lagði parið 3,5 milljónir króna sérstaklega inn á lánið í nokkrum greiðslum til að halda skuldinni í skefjum. Þrátt fyrir það hefur höfuðstóll lánsins hækkað úr 63 milljónum króna í tæplega 70 milljónir. Þarna birtist kjarni vandans við verðtryggð lán og hátt raunvaxtastig á tímum mikillar verðbólgu. Heimilið greiddi ekki aðeins verðbætur sem hækkuðu höfuðstól lánsins. Þar sem vextir reiknast af verðbættum höfuðstól greiddi það einnig vexti af þeim hækkunum. Verðbólgan hækkaði því ekki bara skuldina heldur líka vaxtakostnaðinn sem rann til lánveitandans. Til samanburðar er áhugavert að líta til þess sem situr hinu megin við borðið. Ímyndum okkur að annar einstaklingur hefði átt sömu upphæð, 63 milljónir króna, á sama tíma og lagt hana inn á sparnaðarleiðina Ávöxtun hjá Íslandsbanka. Ávöxtun er óverðtryggður reikningur með lausa innstæðu og mánaðarlegri vaxtagreiðslu. Þrír skýrir viðmiðunarpunktar lágu fyrir um reikninginn: í fyrsta lagi voru vextirnir 6% hinn 17. febrúar 2023, í öðru lagi bar hann 7% vexti 24. mars 2023 og í þriðja lagi var hann í lok mars 2026 auglýstur með 6,55% vöxtum. Til að áætla ávöxtunina á milli þessara tímamóta var farið kerfisbundið yfir tiltækar tilkynningar Íslandsbanka um vaxtabreytingar á óverðtryggðum innlánsreikningum frá febrúar 2023 til loka mars 2026, ásamt þeim viðmiðunarpunktum sem lágu fyrir um vexti reikningsins. Samkvæmt þessari aðferð virðist meðalávöxtun reikningsins hafa verið um 8% á ári á tímabilinu. Þótt vegið meðaltal vaxta út frá tiltækum gögnum sé um 8,02% bendir áætluð lokastaða innistæðunnar til þess að árleg nafnávöxtun með uppsöfnun hafi getað verið nokkuð hærri, eða um 8,36% á ári yfir allt tímabilið. Á móti kemur að tilkynningar bankans voru ekki alltaf fullkomlega nákvæmar í orðalagi og sumar breytingar orðaðar sem hækkun eða lækkun um „allt að“ tiltekið hlutfall. Því er ekki unnt að endurgera vaxtaferil reikningsins með fullri vissu á hverjum tímapunkti. Af þeim sökum er 8% notað sem viðmið, byggt á bestu tiltæku gögnum, fremur en sem nákvæm staðhæfing um vexti á hverjum degi. Miðað við þá vaxtaþróun hefði 63 milljóna króna innistæða frá 17. febrúar 2023 til 31. mars 2026 vaxið í um 80,9 milljónir króna. Nafnávöxtunin yfir tímabilið hefði því numið um 17,9 milljónum króna, eða um 13,96 milljónum króna eftir 22% fjármagnstekjuskatt. Sé tekið tillit til vísitölu neysluverðs, sem hækkaði úr 577,3 stigum í 678,3 stig á sama tímabili, yrði raunlokastaða innistæðunnar um 68,9 milljónir króna fyrir skatt. Raunávöxtunin fyrir skatt hefði því numið um 5,9 milljónum króna. Að teknu tilliti til fjármagnstekjuskatts af nafnávöxtuninni yrði raunávöxtunin hins vegar nær 2,5 milljónum króna. Niðurstaðan er sláandi. Sá sem skuldaði 63 milljónir króna greiddi milljónir í vaxtakostnað, lagði auk þess 3,5 milljónir sérstaklega inn á lánið til að halda því niðri, stendur samt uppi með hærri höfuðstól en í upphafi. Sá sem átti sömu upphæð og lagði hana inn á sparnaðarreikning fékk hins vegar verulega nafnávöxtun og góða raunávöxtun. Þarna birtist kjarninn í þessu vaxtaumhverfi. Annars vegar er heimili með verðtryggt lán sem í upphafi var um 70% veðsett og ætti því að teljast byggja á traustu veði. Hins vegar er einstaklingur sem leggur sömu upphæð inn á óbundinn innlánsreikning, getur tekið fjármunina út hvenær sem er og nýtur jafnframt þeirrar sterku verndar sem innlán hafa notið hér á landi, jafnvel við aðstæður á borð við bankahrunið. Þrátt fyrir þessa ólíku stöðu fær sparifjáreigandinn samkvæmt þessari áætlun um 2,5 milljónir króna í raunávöxtun á rúmum þremur árum, á meðan skuldarinn greiðir á sama tímabili um 7,81 milljónir króna á föstu verðlagi, miðað við mars 2026, í vexti og auknum vaxtakostnaði vegna verðbóta. Munurinn nemur því um 10,3 milljónum króna á tímabilinu, eða rúmlega 275 þúsund krónum á mánuði. Þegar fólk segir að því líði eins og það sé orðið hraðbanki fyrir fjármagnseigendur er auðvelt að afgreiða það sem tilfinningalega orðræðu. En þegar tölurnar eru lagðar á borðið verður sú lýsing allt í einu mjög áþreifanleg. Hún er ekki bara sett fram í hugsunarleysi. Hún er lýsing á kerfi þar sem verðbólga, verðtrygging og háir raunvextir geta unnið saman þannig að fjármunir flytjast mánuð eftir mánuð frá skuldsettum heimilum til fjármagnseigenda. Höfundur er félagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Neytendur Bogi Ragnarsson Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun