Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson, Víðir Reynisson, Sandra Sigurðardóttir, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifa 10. júní 2026 10:16 Frumvarp um brottfararstöð hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Við, þingmenn sem mynda meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar, sem hefur haft frumvarpið til meðferðar, viljum koma því á framfæri með þessari grein hvað felst í frumvarpinu með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á því, meðal annars vegna þeirra fjölmörgu góðu umsagna sem bárust nefndinni. Vistun í brottfararstöð er lokaúrræði Vistun í brottfararstöð er úrræði sem stjórnvöld þurfa að geta gripið til við tilteknar og fátíðar aðstæður. Þeir einstaklingar sem sækja hér um alþjóðlega vernd fá úrlausn sinna mála á stjórnsýslustigi, þ.e. hjá Útlendingastofnun og, eftir atvikum, Kærunefnd útlendingamála. Þá er ávallt mögulegt fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að skjóta máli sínu til dómstóla. Vistun í brottfararstöð er lokaúrræði þegar önnur og vægari úrræði sem tiltekin eru í lögum um útlendinga hafa ekki dugað til að viðkomandi yfirgefi landið. Í umræðu um brottfararstöð er mikilvægt að árétta að ákvarðanir yfirvalda, hverjar sem þær eru, skuli virtar og séu þær ekki virtar þá séu til úrræði sem knýja á um lúkningu. Í tilviki þeirra sem hafa ekki heimild til að dvelja hér á landi er lokaúrræðið að vista viðkomandi í brottfararstöð í skamma stund áður en hann er fluttur úr landi. Áður en að þeirri vistun kemur verður að hafa reynt til fullnustu að beita öðrum og vægari úrræðum án viðunandi árangurs. Í núverandi framkvæmd brottvísana er lokaúrræðið að viðkomandi einstaklingur er úrskurðaður í gæsluvarðhald og vistaður í fangelsi. Að mati okkar er það ekki réttlætanlegt gagnvart einstaklingi sem ekki er grunaður um refsiverða háttsemi að hann sé vistaður í fangelsi. Þá er það ekki leggjandi á kerfi sem ætlað er fyrir afplánun refsidóma og gæsluvarðhaldsvist að vista þar útlendinga sem flytja á úr landi og hafa ekki brotið af sér með refsiverðum hætti. Fjölskyldur með börn Í meðförum allsherjar- og menntamálanefndar á frumvarpi um brottfararstöð hefur sjónum mjög verið beint að fjölskyldum með börn. Getur það komið til álita að fjölskyldur með börn séu vistaðar á brottfararstöð? Þetta álitaefni höfum við skoðað nákvæmlega og eftir álitum hvernig því yrði við komið að börn séu á brottfararstöð. Fólk sem leitar til Evrópulanda, af hvaða ástæðum sem það er, kemur oftast fyrir tilstuðlan glæpahópa sem krefjast hárra fjárhæða fyrir veitta þjónustu. Í þessu umhverfi geta reglur í einu landi valdið því að krafist er hærra gjalds til að koma fólki þangað. Í þessu samhengi verður að ítreka sérstaklega að sérreglur í einu landi, þ.e. reglur sem að einhverju leyti gera minni kröfur við meðferð umsókna um alþjóðlega vernd eða þar sem ákveðnum úrræðum er ekki beitt eins og tíðkast í öðrum löndum, leiða til þess að þangað leitar fólk. Sé það svo að í einu landi sé ekki beitt sömu úrræðum, varðandi fjölskyldur með börn sem fengið hafa lokaniðurstöðu um heimild til dvalar, og í öðrum löndum þá leita fjölskyldur með börn til þess lands. Ef sú staðreynd að börn séu í fjölskyldum leiðir til þess að fjölskyldurnar verða ekki fluttar úr landi, vinni þær ekki með yfirvöldum að brottför, eru það sérreglur sem glæpahóparnir sem nefndir voru hér að framan munu nýta sér og krefjast þóknunar í samræmi við það. Sú er ein ástæða þess að það er hvorki mannúðlegt né heppilegt fyrir samfélög að hafa aðrar reglur en nágrannalönd þeirra. Sérstakt tillit er tekið til fjölskyldna Á brottfararstöð verða ekki vistaðar fjölskyldur með börn nema öll önnur og vægari úrræði hafi verið reynd auk þess sem strangt mat þarf að fara fram á nauðsyn þess að vista barn á brottfararstöð og færri tilvik munu gilda um það hvenær megi vista þar barn. Þá eru og tímamörk vistunar barna skýrt afmörkuð og mun skemmri en vistun fullorðinna. Lýsing á vistarverum sem fjölskyldum eru ætlaðar í breytingartillögum allsherjar- og menntamálanefndar er mikilvæg svo dregið sé, eftir því sem kostur er, úr íþyngjandi aðstæðum sem börn eru sett í. Að mati okkar, sem þetta skrifum, er núverandi kerfi verri kostur en eins og vikið var að hér að framan þá er lokaúrræði varðandi einstaklinga sem flytja á úr landi að úrskurða þá í gæsluvarðhald. Í þeim tilvikum þar sem um er að ræða einstaklinga sem hafa börn á sínu framfæri þá kemur það fyrir að hinir fullorðnu eru úrskurðaðir í gæsluvarðhald en börnunum komið til fósturfjölskyldna á vegum barnaverndaryfirvalda. Óháð öllu öðru telur meirihluti nefndarinnar þessa framkvæmd með öllu óásættanlega og mikilvægt sé að bregðast við þessari stöðu. Í þessu samhengi er líka mikilvægt að halda því til haga að börn verða almennt ekki úrskurðuð í brottfararstöð, heldur fylgja þau foreldrum sínum til þessarar stuttu vistar. Það er réttur barna að fylgja foreldrum sínum sé þess nokkur kostur og mikilvægt að allt sé gert til að þess að sá réttur sé virtur. Í meðförum allsherjar- og menntamálanefndar hefur frumvarpi um brottfararstöð verið breytt með ýmsum hætti er lýtur að börnum, m.a. með því að gera það ófrávíkjanlegt hvernig vistarverur sem fjölskyldur með börn eru vistaðar í eru en þeim eru ætlaðar vistarverur sem ekki er deilt með öðrum að neinu leyti og tryggja börnum viðeigandi leikaðstöðu. Þá gerum við tillögu um að ráðherra skili Alþingi skýrslu tólf mánuðum eftir að brottfararstöð tekur til starfa. Þar er m.a. áskilið að tiltekið verði hve margar fjölskyldur hafi verið vistaðar á brottfararstöð á fyrsta starfsári hennar og fjöldi barna sem þar hafa verið vistuð. Það er von okkar að afar sjaldan muni koma til þess að fjölskyldur með börn verði vistaðar á brottfararstöð og vonandi aldrei en við teljum óhjákvæmilegt að sá varnagli sé sleginn að þegar allt um þrýtur hvað það varðar að fá fólk til að yfirgefa landið þá sé nauðsynlegt að þetta úrræði sé fyrir hendi. Tvenn markmið Markmiðið með þessari lagasetningu er því annars vegar að ná stjórn á framkvæmd útlendingamála og uppfylla skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist samkvæmt Schengen-samstarfinu. Hins vegar er það að gæta mannréttinda þeirra sem eiga að fara af landi brott eftir að hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd en vilja ekki virða þá niðurstöðu stjórnvalda. Það þarf að tryggja að ákvörðunum stjórnvalda sé framfylgt í þessum málaflokki eins og öðrum. Við í allsherjar- og menntamálanefnd lögðum okkur fram við að tryggja að það yrði gert með eins mildilegum hætti og mögulegt er. Ekki síst í þeim tilvikum þar sem fjölskyldur eiga í hlut. Höfundar mynda meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grímur Grímsson Víðir Reynisson Sandra Sigurðardóttir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Guðmundur Ari Sigurjónsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Brottfararstöð fyrir útlendinga Hælisleitendur Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun