Lukaku skrópar á æfingar og er hótað refsingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 16:46 Romelu Lukaku segist vera í meðferð í Belgíu en ítalska félagið Napoli segir hann skrópa á æfingar. Getty/Image Photo Agency Belgíski framherjinn Romelu Lukaku á yfir höfði sér refsingu hjá Napoli eftir að hafa skrópað á æfingar liðsins.
Framherjinn dró sig úr belgíska landsliðshópnum fyrir vináttuleiki gegn Bandaríkjunum og Mexíkó í Norður-Ameríku en hélt aftur til heimalands síns til að fá meðferð. Lukaku hefur aðeins spilað sjö leiki á þessu tímabili, alla sem varamaður, eftir að hafa misst af fyrri hluta tímabilsins vegna alvarlegra meiðsla aftan í læri. 🚨 Napoli confirm Romelu Lukaku did not return to training today despite their request for him to rejoin the group in Naples. The club adds he could face disciplinary action.Understand Lukaku is dealing with a new complication rather than only addressing a lack of fitness… pic.twitter.com/8oRSr1bdlQ— Ben Jacobs (@JacobsBen) March 31, 2026 Í yfirlýsingu frá Napoli á þriðjudagseftirmiðdegi stóð: „SSC Napoli getur staðfest að Romelu Lukaku brást ekki við kalli um að snúa aftur á æfingu í dag. Félagið áskilur sér rétt til að íhuga viðeigandi agaviðurlög, auk þess að ákveða hvort leikmaðurinn muni halda áfram að æfa með liðinu um óákveðinn tíma.“ Lukaku útskýrði ákvörðun sína um að ferðast til Belgíu í færslu á Instagram á mánudag. Þessi 32 ára gamli fyrrverandi framherji Chelsea og Manchester United, sem gekk til liðs við Napoli árið 2024, skrifaði: „Sannleikurinn er sá að undanfarnar vikur hef ég ekki verið líkamlega heill og ég lét athuga það á meðan ég var í Belgíu og það kom í ljós að það var bólga og vökvi í mjaðmarbeygjuvöðvanum.“ „Þar sem þetta er annað vandamálið sem ég hef glímt við síðan ég kom til baka í byrjun nóvember valdi ég að fara í endurhæfingu í Belgíu.“ Lukaku fullyrti að framtíð sín væri áfram á Ítalíu og bætti við: „Ég gæti aldrei snúið baki við Napoli, aldrei. Það er ekkert sem ég myndi elska meira en að spila og vinna [fyrir] liðið mitt,“ sagði Lukaku. „En núna verð ég að ganga úr skugga um að ég sé hundrað prósent líkamlega heill því ég hef ekki verið það nýlega og það hefur tekið sinn toll andlega,“ sagði Lukaku. Napoli er í þriðja sæti Serie A-deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Inter Milan.
Ítalski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Sjá meira