Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Aron Guðmundsson skrifar 1. apríl 2026 13:30 Kimi Antonelli er að slá í gegn í upphafi yfirstandandi tímabils í Formúlu 1 Vísir/Samsett Ítalska undrabarnið Kimi Antonelli leiðir heimsmeistarakeppni ökuþóra í Formúlu 1 um þessar mundir. Sérfræðingur Íslendinga um Formúlu 1, Bragi Þórðarson, telur Antonelli geta farið alla leið í ár og staðið uppi sem heimsmeistari.
Þrátt fyrir unga aldur er Antonelli, sem er nítján ára gamall, að fara á kostum í upphafi Formúlu 1 tímabilsins og hefur unnið tvær af þremur keppnum tímabilsins til þessa. Ítalinn ungi leiðir heimsmeistaramótið og er fyrsti Ítalinn síðan árið 1952, síðan goðsögnin Alberto Ascari var og hét, til þess að vinna tvær keppnir í röð í Formúlu 1. Er hann undrabarn? „Kimi Antonelli er yngsti ökuþórinn í 76 ára sögu Formúlu 1 til þess að leiða stigakeppni ökuþóra, fyrsti táningurinn. Aðeins nítján ára gamall,“segir Bragi Þórðarson, Formúlu 1 lýsandi á Sýn Sport Viaplay. Og er hann að skáka liðsfélaga sínum George Russell í upphafi tímabils nokkuð óvænt en bíll Mercedes hefur staðið öðrum framar fyrstu keppnishelgar tímabilsins. „Fyrir tímabilið, þegar að við sáum hversu góður bíll Mercedes var, bjuggumst við nú við að þetta yrði bara þægilegt fyrir George Russell, reyndari ökuþór liðsins sem hefur verið hjá Mercedes síðan árið 2022 og hefur verið í Formúlu 1 síðan 2020. Russell fær loksins núna bíl í hendurnar sem hann getur unnið heimsmeistaratitil í en þá er bara einhver nítján ára krakki að vinna hann.“ George Russell, maðurinn sem felstir bjuggust við að yrði aðalmaðurinn hjá Mercedes þetta árið, er að tapa fyrir nítján ára liðsfélaga sínumVísir/Getty Antonelli að skjótast í fyrsta sinn almennilega fram á sjónarsviðið núna, hann fékk bílprófið á síðasta ári en Mercedes hefur fylgst vel með þróun hans frá því í barnæsku. „Mercedes fá hann í sínar raðir þegar Kimi er ellefu ára. Ítalinn var undrabarn um leið og hann settist í go-kart bíl. Það er hægt að segja það um ansi marga en einhvers staðar í tröppuganginum hafa þeir hikstað. En það er greinilega að virka fyrir Mercedes að hafa veðjað á Antonelli.“ Dýrkar og dáir Senna Samnefnarar séu milli Antonelli og Formúlu 1 goðsagnarinnar Ayrton Senna sem varð á sínum tíma þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1. Ayrton Senna varð þrisvar sinnum heimsmeistari með McLaren Honda-liðinu árin 1988, 1990 og 1991. „Það er hægt að bera hann saman við goðsögnina Ayrton Senna á þessum tímapunkti á ferlinum. Kimi Antonelli lítur mikið upp til Ayrton Senna og valdi sérstaklega rásnúmerið hans, 12, á sinn bíl. Kimi og Senna unnu báðir fyrstu keppni sína í Formúlu 1 með rásnúmerið 12 á bílnum. Unnu sína fyrstu keppni í annarri keppni á öðru tímabili. Á fyrsta tímabili þeirra í mótaröðinni ná þeir báðir að enda í þrígang á verðlaunapalli. Þessir ferlar eru að speglast svolítið fallega saman núna. Og ef eitthvað er, núna eftir þrjár keppnir á öðru tímabili, er Antonelli að standa sig betur heldur en Ayrton Senna.“ Getur farið alla leið Antonelli á efsta þrepi verðlaunapallsins eftir sigur í japanska kappakstrinum um síðastliðna helgiVísir/Getty Sérðu hann fara alla leið á þessu tímabili? „Hann leiðir heimsmeistaramótið með níu stigum núna. Já. Ef maður horfir á alla keppnishelgina núna síðast í Japan var hann hraðari en George Russell, liðsfélagi hans í Mercedes. Nánast í öllum æfingum og gegnum alla helgina. Miðað við hvernig þetta tímabil er að þróast. Allavegana í byrjun, þar sem að Mercedes er allavegana skrefi á undan öðrum liðum, þá þarf Antonelli í raun bara að hugsa um að vera á undan Russell eins og staðan er núna. Hin liðin munu hins vegar ná að vinna upp þessar sekúndur sem Mercedes hefur á þau núna. Það verður allavegana spennandi að sjá hvað gerist í næstu keppni í Miami í maí.“
Akstursíþróttir Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira