Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar 2. apríl 2026 14:31 Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins hefur sig víða frammi í viðtölum og greinaskrifum vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Málflutningur hans sýnir að hann styður Ísraelsríki og þjóðarmorðið í Palestínu. Sigmundur Davíð hefur aftekið að hernaður Ísraels sé þjóðarmorð. Hann velur að rangtúlka skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna á þjóðarmorði og gerir tilraun til þess að vera fyndinn þegar hann lýsir því að Ísraelsher hafi „gengið afskaplega illa“ með þjóðarmorðið. Vel heppnað þjóðarmorð virðist vera í málflutningi Sigmundar það að útmá algjörlega heila þjóð. Skilgreining Sameinuðu þjóðanna á þjóðarmorði er alveg skýr: Þjóðarmorð (e. Genocide) er: að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi, - að valda einstaklingum úr viðkomandi hópi alvarlegum líkamlegum eða andlegum skaða, - að þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans, - að beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum, - að flytja börn með valdi úr hópnum til annars hóps. Alþjóðadómstóllinn (ICJ) úrskurðaði í janúar 2024 að ásakanirnar um þjóðarmorð væru „sennilegar“ og hafnaði beiðni Ísraels um að vísa málinu frá. Dómstóllinn fyrirskipaði ennfremur Ísraelsher að stöðva hernaðaraðgerðir og grípa til tafarlausra og árangursríkra aðgerða til að gera kleift að veita bráðnauðsynlega grunnþjónustu og mannúðaraðstoð til að bregðast við þeim skelfilegu lífsskilyrðum sem Palestínumenn á Gasasvæðinu búa við. Þvert á fyrirskipanir dómstólsins hefur Ísraelsher hert árásirnar og drepið tugþúsundir Palestínumanna með sprengjum og hindrun á flutningi lífsnauðsynja til Gaza. Allur heimurinn er vitni að þessu framferði Ísraelshers. Væntanleg niðurstaða Alþjóðadómstólsins getur því ekki orðið á annan veg en að dæma Ísrael sekt um þjóðarmorð. Og þá fer að gusta um stuðningslið morðingjahersins. Sigmundur Davíð og helför nasista Þessa ranga túlkun Sigmundar Davíðs á því hvað er þjóðarmorð er gerð í þeim tilgangi að afneita þjóðarmorðinu í Palestínu og styðja þar með þá sem allir vita að eru sekir um þjóðarmorð. Með þessari túlkun, að þjóðamorð sé útrýming heillar þjóðar, er Sigmundur að afneita þjóðarmorði nasista gegn gyðingum. Nasistar, með allri sinni drápstækni, drápu ekki alla gyðinga. Þeir ástunduðu misheppnað þjóðarmorð að mati formanns Miðflokksins. Það sem mun ekki gleymast Í viðtali við Morgunblaðið 1. apríl segir Sigmundur Davíð: „að saka Gyðingaþjóðina um þjóðarmorð, þ.e. að reyna viljandi að útrýma annari þjóð, er mjög alvarlegt mál sem gleymist ekki, hvorki þar í landi né hjá öðrum bandamönnum Ísraelsmanna og okkar.“ Hér fer ekkert á milli mála hver afstaða Sigmundar er. Hann kýs auðvitað að segja andstæðinga þjóðarmorðs „saka Gyðingaþjóðina um þjóðarmorð.“ Það er ekki ásökun á hendur gyðingum að benda á að Ísraelsríki fremji þjóðarmorð. Sigmundur Davíð gerir sig hér sekan um það sem margir segja vera gyðingahatur; þ.e. að gera alla gyðinga samseka með gjörðum Ísraelsstjórnar. Meirihluti gyðinga býr ekki í Ísrael og meðal bandarískra gyðinga, sem eru álíka margir og gyðingarnir sem búa í Ísrael, eru 40% þeirrar skoðunar að Ísrael fremji þjóðarmorð á Gaza. Samkvæmt Sigmundi Davíð saka þessir gyðingar sína eigin trúbræður um að aðgerðir Ísraels sé þjóðarmorð. Þetta „er mjög alvarlegt mál sem gleymist ekki,“ segir Sigmundur. Það sem ekki mun gleymast er stuðningur fjölda stjórnmálamanna og ráðamanna við Ísrael, við þjóðarmorð sem fer fram fyrir opnum tjöldum - eftirá mun enginn geta sagt „ég vissi ekki neitt“. Sigmundur Davíð hefur tekið sér stöðu með glæpum gegn mannkyni - og þessa verður minnst þegar Alþjóðadómstóllinn kveður upp sinn dóm. Höfundur er formaður Félagsins Ísland – Palestína og hann skrifaði einnig bókina Íslandsstræti í Jerúsalem. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar