Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar 3. apríl 2026 17:30 Hvar við búum er hluti af ímynd okkar rétt eins og „hvurra manna“ við erum og nú stöndum við Íslendingar, einu sinni enn, frammi fyrir sveitarstjórnarkosningum þar sem okkur gefst lýðræðislegt tækifæri til áhrifa á nærumhverfi okkar.Flokkar hafa klofnað, þeim fjölgað, þeir breyst, frambjóðendur eru með misgott nesti í handraðanum eftir því úr hvaða umhverfi þeir koma og misauðvelt að átta sig á hvert þeir stefna með framboði sínu og með hverjum maður á samleið.Þá er stundum gott að byrja á byrjuninni og skoða hverjar þarfirnar eru. Hvað þarft þú í þínu umhverfi og hverjar eru þínar kröfur? Það fyrsta sem þarf að huga að er húsnæði, hver er húsnæðisþörfin og er henni mætt?Er bæði leigu og eignarhúsnæði í boði í nágrenni þínu ef þú þarft stærra eða minna húsnæði innan þíns hverfis?Er húsnæði þitt og umhverfi þess öruggt fyrir þig og þína?Hefur þú aðgang að náttúru í grennd við heimili þitt?Eru verslanir, sundlaug eða bókasafn í hæfilegri fjarlægð?Getur þú nýtt þér almenningssamgöngur og ef ekki, getur tilkoma Borgarlínu auðveldað þér og þínum daglegt líf?Eru börn þín í leikskóla, grunnskóla, frístund eða félagsmiðstöð við hæfi?Viltu að gert sé betur, viltu taka virkan þátt í að bæta grunnstoðirnar með okkur og skapa börnum okkar betri aðstæður í leik og starfi? Velferð og réttindi skipta líka máli. Huga þarf að eldra fólki og bjóða upp á stöðugleika í þjónustu þeirra, hafa öfluga stefnu fyrir fatlað fólk þar sem hlustað er á ólíkar þarfir þeirra, styðja þarf áfram við einstæða foreldra, efnaminna fólk, börn úr fátækt þurfa aukinn áfallamiðaðan stuðning, rjúfa þarf einangrun ýmissa jaðarsettra hópa og finna leiðir til að tengjast betur innan samfélagsins til að draga úr sundrungu og vanlíðan og efla þarf forvarnir.Við vitum að það er margt gott í borginni þó því sé sjaldnar haldið til haga en það gagnast ekki að dvelja bara við það neikvæða, dásömum það sem gott er og bætum það sem þarf og það hefst á samtali – orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið. Það er af nógu að taka í borgarmálunum og við virðum vilja fólks til að hafa áhrif í sínu nærsamfélagi því einungis þannig getum við byggt upp samfélag sem innifelur okkur öll og skilur ekki útundan.Vinstrið, sem er nýtt og sameinað vinstra afl, vill betri borg fyrir öll en það gerum við ekki án ykkar íbúanna - vertu með, sköpum réttlátt samfélag sem virðir jafnrétti og gefur engan afslátt af mannréttindum. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar fjórða sæti Vinstrisins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstrið Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun