Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar 4. apríl 2026 13:00 Þó að verðbólga mælist 5% eða einhver önnur prósenta hjá Hagstofunni, þýðir það ekki að við séum öll að upplifa sömu verðbólgu. Sum heimili finna fyrir hærri verðbólgu, önnur lægri. Það fer allt eftir því hvernig við verjum peningunum okkar. Það er hægt að lækka eigin verðbólgu með ýmsum ráðum. Verðbólga á Íslandi kemur hratt en fer hægt, hún er bæði þrálát og seig. Flest okkar eiga hlut að henni með því einfaldlega að kaupa vöru eða þjónustu þó hún hækki í verði. Það verður ekki hjá því komist. Öll þurfum við næringu, föt og húsaskjól. Margt af þessu hefur hækkað í verði og fólk hefur oftast ekki mikil ráð með annað en að halda áfram að borga.Þegar þetta er skrifað er eldsneytisverð í stórum stökkum upp á við. Til að lækka útgjöld heimilisins til lengri tíma er hægt að skipta yfir í rafbíl. Rafmagn sveiflast líka í verði, en mun minna en bensín eða dísilolía. Stundum er rafmagn dýrt, sérstaklega þegar það er framleitt með olíubrennslu. Þá er enn betra að hafa heitt vatn til upphitunar. Heitt vatn hefur reynst vera mun stöðugra í verði. Bæði rafmagn og heitt vatn hafa lækkað miðað við laun, en það hafa bensín og olíur ekki gert.Þú getur breytt neysluvenjum, valið ódýrari vöru og þjónustu eða forðast sérstaklega þær vörur sem hafa hækkað mikið. Fólk gleymir seint þegar seljendur nota verðbólgu sem yfirskin fyrir hækkanir sem er kallað græðgisbólga. Slík fyrirtæki eru að eyðileggja traust og kaupvild til framtíðar. Hægt er að fara yfir allar áskriftir og segja upp sérstaklega hjá þjónustu- og streymisveitum sem hafa hækkað verulega undanfarin ár. Ef þú sem lest þetta hefur þegar breytt neyslu á þennan hátt, ertu að vinna gegn verðbólgu í landinu almennt, og gerir þar með ekki bara gott fyrir þig heldur einnig fyrir alla lántakendur. Vel gert hjá þér!Ef þú býst við að ég geri hér mikinn mun á óverðtryggðum og verðtryggðum lánum til að vinna sig frá verðbólgu, þá er það ekki mín reynsla. Svokölluð óverðtryggð lán reikna verðbólgu beint inn í vaxtaprósentu og lánveitendur gæta þess að vera alltaf nokkuð yfir verðbólgunni til að fá einhverja raunvexti. Með öðrum orðum, þá eru þau alls ekki óverðtryggð. Helsti munurinn hefur verið sá að óverðtryggð lán eru greidd hraðar niður, á meðan verðtryggð lán fylgja frekar kaupmætti. Þegar fram líða stundir og laun hækka umfram verðbólgu verður hins vegar auðveldara að greiða af verðtryggðu láni. Auðvelt væri að segja að fólk ætti einfaldlega að borga upp lánin sín,draga úr neyslu og segja upp áskriftum. En það er ekki á allra færi. Venjulegt launafólk eyðir stórum hluta starfsævinnar í að greiða af húsnæðislánum, sum lengur. Hins vegar er hægt að byrja á því sem er raunhæft: fara yfir og segja upp áskriftum, hætta að kaupa vörur sem hafa hækkað mikið, skipta yfir í rafbíl þegar það er mögulegt. Sum geta tekið stærri skref, eins og að skipta úr dýrri húshitun yfir í ódýrari, greiða upp hluta láns eða búa nær vinnunni svo hægt sé að ganga til og frá. Eftir því sem fleiri taka slíkar ákvarðanir lækkar verðbólgumæling Hagstofunnar og greiðslubyrði lána minnkar. Það munar um minna.Höfundur er upplýsingafræðingur og stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verðlag Fjármál heimilisins Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar