Enginn í bann en fullt af sektum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 12:23 Upp úr sauð í leik Grindavíkur og Njarðvíkur á fimmtudaginn. vísir/guðmundur Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu eftir uppákomuna í fyrsta leik Grindavíkur og Njarðvíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Enginn leikmaður var úrskurðaður í bann en félögin, og þá sérstaklega Grindavík, þurfa að greiða vænar sektir.
Njarðvíkingurinn Dominykas Milka, sem var rekinn út úr húsi undir lok leiksins, fékk fjörutíu þúsund króna sekt og Grindvíkingurinn Jordan Semple fékk áttatíu þúsund króna sekt en hann fékk óíþróttamannslega villu fyrir sinn þátt í ólátunum í leiknum á fimmtudaginn. Grindavík fékk 250 þúsund króna sekt vegna framkomu áhorfenda sem fóru inn á völlinn og tóku þátt í stimpingum við leikmenn. Það var þó talið Grindvíkingum til málsbóta að gæslumenn brugðust hratt við aðstæðum og leystu vel úr þeim. DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, fékk fimmtíu þúsund króna sekt vegna átta tæknivillna sem hann hefur fengið á tímabilinu. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, fékk þrjátíu þúsund króna sekt þar sem hann hefur fengið sex tæknivillur í vetur. Milka fékk tuttugu þúsund króna sekt vegna fjögurra tæknivillna á tímabilinu og þá fékk Grindavík þrjátíu þúsund króna sekt sem liðið fékk í leiknum á fimmtudaginn. Alls nema sektirnir sem Grindavík fékk 440 þúsund krónum en Njarðvík fékk samtals áttatíu þúsund króna sekt. Eftir leikinn sendi Grindavík frá sér yfirlýsingu þar sem félagið harmaði atvikið og sagði jafnframt að viðkomandi stuðningsmaður hefði beðist afsökunar. Annar leikur Njarðvíkur og Grindavíkur fer fram í IceMar-höllinni í Njarðvík á mánudaginn. Njarðvíkingar unnu fyrsta leikinn með tíu stiga mun, 87-97.
Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Njarðvík KKÍ Tengdar fréttir Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Eftir allt havaríið í Grindavík í fyrrakvöld, þegar jafnvel lögregla og gæslufólk skarst í leikinn vegna óláta, er ómetanlegt að hafa rapparann og körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson til að útskýra á methraða hvað í ósköpunum gekk á. 3. apríl 2026 08:00 Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ „Við viljum alls ekki sjá þetta. Ég og við öll í kringum sambandið lítum þetta alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, um þá uppákomu sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta í gær. 2. apríl 2026 09:36 „Skemmir bara fyrir báðum liðum og bara leiðinleg uppákoma“ Njarðvíkingar unnu gríðarlega öflugan tíu stiga sigur 87-97 í fyrsta leik einvígisins gegn Grindavík í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld.Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur ræddi við Sýn eftir leik. 1. apríl 2026 21:45 Uppgjörið:Grindavík - Njarðvík 87-97| Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Úrslitakeppni Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld þar sem Deildarmeistararnir í Grindavík fengu Njarðvíkinga í heimsókn í leik eitt í HS Orku-höllinni. 1. apríl 2026 21:45 Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Allt sauð upp úr undir lok leiks Grindavíkur og Njarðvíkur í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar karla. Slagsmál brutust út og lögreglan þurfti að skerast í leikinn. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. 1. apríl 2026 21:44 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira
Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Eftir allt havaríið í Grindavík í fyrrakvöld, þegar jafnvel lögregla og gæslufólk skarst í leikinn vegna óláta, er ómetanlegt að hafa rapparann og körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson til að útskýra á methraða hvað í ósköpunum gekk á. 3. apríl 2026 08:00
Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ „Við viljum alls ekki sjá þetta. Ég og við öll í kringum sambandið lítum þetta alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, um þá uppákomu sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta í gær. 2. apríl 2026 09:36
„Skemmir bara fyrir báðum liðum og bara leiðinleg uppákoma“ Njarðvíkingar unnu gríðarlega öflugan tíu stiga sigur 87-97 í fyrsta leik einvígisins gegn Grindavík í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld.Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur ræddi við Sýn eftir leik. 1. apríl 2026 21:45
Uppgjörið:Grindavík - Njarðvík 87-97| Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Úrslitakeppni Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld þar sem Deildarmeistararnir í Grindavík fengu Njarðvíkinga í heimsókn í leik eitt í HS Orku-höllinni. 1. apríl 2026 21:45
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Allt sauð upp úr undir lok leiks Grindavíkur og Njarðvíkur í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar karla. Slagsmál brutust út og lögreglan þurfti að skerast í leikinn. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. 1. apríl 2026 21:44