Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Freyja Þórisdóttir skrifar 4. apríl 2026 14:36 Samkvæmt umfjöllun The Independent er flugmaðurinn fyrsti bandaríski flugmaðurinn sem skotinn er niður yfir óvinasvæði frá því að flugmaður orrustuþotu varð fyrir loftvarnaeldflaug í apríl ársins 2003. AP Bæði Bandaríkjamenn og Íranir leita enn að bandarískum herflugmanni eftir að herþota sem hann var um borð í var skotin niður. Átta milljónir íslenskra króna eru í boði hverjum þeim sem getur vísað írönskum yfirvöldum á „óvinaflugmanninn“.
Íranar hafa að eigin sögn skotið niður tvær bandarískar herþotur, eina F-15 þotu sem flaug yfir suðvesturhluta landsins og aðra flugvél sem tók þátt í björgunarleiðangri til að bjarga áhöfn F-15 þotunnar. Tveir áhafnarmeðlimir voru í F-15 þotunni. Öðrum meðlimnum var bjargað en hins flugliðans er enn saknað. Þessu greinir breski fjölmiðillinn BBC frá í umfjöllun um málið. Flugmaður seinni flugvélarinnar sem skotin var niður skaut sér út á öruggan hátt yfir Persaflóa og var bjargað. Íranar bjóða fundarlaun hverjum þeim sem getur handsamað áhafnarmeðliminn sem saknað er á lífi, að því er íranska ríkissjónvarpið greinir frá. Joel Gunter, yfirfréttamaður alþjóðlegra frétta, segir að björgunaraðgerðir séu flóknar og að bæði bandarískar þyrlur og flugvélar hafi verið látnar fljúga lágt yfir suðurhluta landsins. „Bandaríkjamenn hafa lagt sig í mikla hættu við leitina, en þeir eru ekki þeir einu sem leita. Írönsk yfirvöld hafa boðið verðlaun sem samsvara 50.000 pundum fyrir hvern þann almenna borgara sem getur handsamað flugmanninn lifandi,“ segir Gunter. Í íslenskum krónum eru það rúmar átta milljónir. Gunter segir einnig „að BBC hafi heimildir fyrir því að íranskar öryggissveitir hafi lokað af svæði á því landsvæði sem þær eru að leita á“. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að atvikið muni ekki hafa áhrif á samningaviðræður við Íran. Hann sagði þó að það gæti breyst hratt ef flugmaðurinn verði handsamaður.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Sjá meira