Hljóp heilt maraþonhlaup á göngum skólans síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 06:33 Denas, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, fagnar árangri sínum með stuðningsfólki. Fjölbrautaskói Suðurlands Ungur nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tók að sér krefjandi verkefni á dögunum til að styrkja mjög gott málefni. „
Ég heiti Denas og ætla að hlaupa heilt markaþon á annarri hæð í skólanum til að styrkja Ljósið,“ sagði Denas. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Hver hringur á skólagöngunum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er 140 metrar og þetta þýddi því að Denas varð að hlaupa 310 hringi til að klára maraþonhlaupið. 310 ferðir þýða samtals 43,4 kílómetra sem er meira en maraþonhlaup sem er nákvæmlega 42,195 metrar. Strákurinn byrjaði að hlaupa klukkan 10.26 um morguninn en áður en hann fór af stað tók hann eitt glæsilegt heljarstökk úr kyrrstöðu. Denas var búinn að hlaupa fimm kílómetra eftir 28 mínútur og þegar hann kláraði fyrstu tíu kílómetrana var hann búinn að hlaupa í fimmtíu mínútur. Klukkan 11.33 var hann búinn að klára hundrað ferðir eða þriðjunginn af hlaupinu. Hálft maraþon var að baki klukkan 12.27 en þá var Denas búinn að hlaupa í tvo klukkutíma á göngum skólans. Eftir þrjátíu kílómetra var þetta farið að taka verulega í. „Fæturnir mínir eru að deyja,“ sagði Denas en hélt samt áfram. Hann kom svo í mark klukkan 13.55 og var þá búinn að vera að hlaupa á göngum skólans í þrjá og hálfan klukkutíma. „Tíminn var 3:30,33 og þetta var allt í lagi, tímasett af NFS og stjórnendum,“ var haft eftir Denas í myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan. Þar má sjá Denas klára þetta flotta styrktarhlaup sitt. View this post on Instagram A post shared by NFS (@nfsgram)
Hlaup UMF Selfoss Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Leik lokið: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Fleiri fréttir Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur | Eru Valskonur hrokknar í gang? Fram - Breiðablik | Tvö af fjórum efstu takast á FH - ÍA | Böðvar mættur að auka böl FH-inga Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Sjá meira