Erlent

Dregur í land með því skil­yrði að Hormússund sé opnað

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fallist á tillögur sem fela í sér tveggja vikna vopnahlé í Íran, með því skilyrði að stjórnvöld þar séu reiðubúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. Stjórnvöld í Íran segist hafa fallið á miðlunartillögu Pakistans.

Samkomulagið náðist skömmu áður en frestur Trumps rann út en hann hafði krafist þess að Íran samþykkti opnun Hormússunds að nýju. Stjórnvöld myndu annars horfa fram á tortímingu „heillar siðmenningar.“ 

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, sagði í yfirlýsingu að Íran hafi samþykkt tillögu Pakistans um vopnahlé og að ef árásum á Íran verði hætt muni Íran einnig „hætta varnaraðgerðum sínum. Í tvær vikur verður örugg leið um Hormússund möguleg í samráði við herafla Írans.“

New York Times hefur eftir bandarískum embættismanni að hernaðarárásum Bandaríkjanna á Íran hafi verið hætt í samræmi við tveggja vikna vopnahléssamkomulagið.

Áður hafði verið haft eftir ónefndum írönskum embættismanni að siglingaleiðin yrði opnuð aftur, en með skilyrðum.

Í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í kvöld sagði Trump að ef Íran gæti samþykkt „ALGJÖRA, TAFARLAUSA og ÖRUGGA OPNUN HORMÚSSUNDS“ og þá myndi hann „fresta sprengjuárásum og árásum á Íran í tvær vikur.“ 

Trump hafði hótað öllu illu ef ekki yrði gengið að kröfum hans fyrir miðnætti að íslenskum tíma. Hormússund er hluti af mikilvægri siglingarleið á milli Miðausturlanda og Suðaustur-Asíu. Árásir á skip á svæðinu leiddu til þess að umferð þar stöðvaðist og hafði lokun sundins haft mikil áhrif á olíuverð og hagkerfi heimsins.

Samþykkt miðlunartillögu Pakistans

Trump segir Íran hafa lagt fram „framkvæmanlega“ tíu punkta friðaráætlun sem geti átt þátt í því að binda enda á stríðið. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Á næstu tveimur vikum muni Bandaríkin svo vinna að því að ganga frá samkomulagi við Íran, að sögn Trumps.

„Ástæðan fyrir því er sú að við höfum þegar náð og farið fram úr öllum hernaðarlegum markmiðum og erum komin mjög langt með endanlegt samkomulag um langtíma FRIÐ við Íran og FRIÐ í Miðausturlöndum,“ skrifaði hann í samfélagsmiðlafærslu. „Við fengum 10 punkta tillögu frá Íran og teljum hana raunhæfan grundvöll til samningaviðræðna.“

Trump fullyrðir jafnframt að búið sé að gera upp nær öll fyrri ágreiningsefni Bandaríkjanna og Írans. Tveggja vikna vopnahléið muni svo gera aðilum kleift að ganga frá samningnum og fullgilda hann.

Misræmi í málflutningi Trumps og klerkastjórnarinnar

Líkt og fyrr segir fullyrðir Trump að Íranir hafi lagt fram tíu punkta tillögur sem geti verið til grundvallar frekari viðræðum. Athygli vekur að þjóðaröryggisráð Íran segir á sama tíma að Trump hafi samþykkt tíu kröfur klerkastjórnarinnar. 

Yfirlýsingar Trump um að samkomulagið sé háð því að stjórnvöld í Íran samþykki skilyrði um opnun Hormússunds virðist svo gefa til kynna að þau hafi ekki enn gengist við öllum skilyrðum Bandaríkjastjórnar.

Kína blandað sér í málið

New York Times (NYT) greinir frá því að Íran hafi samþykkt tveggja vikna vopnahléstillögu Pakistans í kjölfar örvæntingarfullra diplómatískra tilrauna Pakistans og íhlutunar Kína, bandalagsþjóðar stjórnvalda í Íran. 

Þar hafi Íran verið beðið um að sýna sveigjanleika og draga úr spennu. Gerðist þetta innan um vaxandi áhyggjur af efnahagslegri eyðileggingu vegna skemmda á mikilvægum innviðum, að sögn þriggja íranskra embættismanna. Sögðu þeir að vopnahléið hefði verið samþykkt af Ayatollah Mojtaba Khamenei, nýja æðsta leiðtoga Íran, að því er fram kemur í umfjöllun NYT.

New York Times segir jafnframt að í tíu punkta tillögum Írans sé meðal annars gert ráð fyrir því að öllum viðskiptaþvingunum sem allar ríkisstjórnir Bandaríkjanna hafa sett á Íran verði aflétt frá og með stjórnartíð George W. Bush. Óljóst sé hvort Vesturlönd vilji gefa eftir þetta öfluga efnahagslega tól áður en þau fái fram stórar tilslakanir í tengslum við kjarnorkuáætlun Írans, eldflaugar þeirra og kúgun yfirvalda á stjórnarandstæðingum.

Áður dregið í land

Frá því að stríðið í Íran hófst í febrúar hefur Trump sett fram ýmsa tímafresti þar sem hann hótar að herða átökin en dregið svo í land rétt áður en þeir renna út.

Hótanir Trumps náðu nýjum hæðum fyrr í dag þegar hann sagði að „Heil siðmenning [muni] deyja í nótt, og verður aldrei endurreist,“ ef Íran myndi ekki að gera samning sem fæli í sér opnun Hormússunds á ný.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×