Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 21:39 Kári Jónsson gleymir eflaust aldrei sigurkörfu sinni í kvöld, né nokkur sem viðstaddur var á Hlíðarenda. Sýn Sport Valsarinn Kári Jónsson skoraði í kvöld einhverja ótrúlegustu sigurkörfu í sögu úrslitakeppninnar á Íslandi, eftir að Keflavík virtist hafa skorað sigurkörfu á lokasekúndunni.
Það er ekki skrýtið að Gummi Ben hafi misst sig þegar hann lýsti lokakaflanum á Hlíðarenda í kvöld, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Remy Martin kom Keflavík í 78-76 þegar 0,4 sekúndur voru eftir en sá tími dugði einhvern veginn Kára til að tryggja Val sigurinn með flautuþristi. Dómarar leiksins þurftu að fara í skjáinn tvisvar á þessari lokasekúndu, fyrst til að meta hvenær boltinn hefði verið farinn í gegnum netið þegar Martin skoraði og svo til að meta hvort að Kári hefði náð að kasta áður en leiktímanum lauk. Sú var þó niðurstaðan. Þar með eru Valsmenn komnir í 2-1 í frábæru einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta og geta tryggt sig áfram í undanúrslit með sigri í næsta leik í Reykjanesbæ á miðvikudagskvöld. „Mér líður hrikalega vel,“ sagði Kári eðlilega glaður. „Þetta var svakalegt skot hjá Remy. Ég sagði við Lazar [Nikolic sem sendi boltann á Kára úr innkastinu] fyrir þetta að ég gæti verið opinn í horninu. Þetta var geðveikt,“ sagði Kári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kári setur flautuþrist í andlitið á Keflvíkingum og hægt að rifja upp fræga körfu hans yfir allan völlinn í einvígi með Haukum gegn Keflavík árið 2018. „Þetta er kannski svipað á einhvern hátt. Ég hef miklu minni tíma til að hugsa. En þetta er svipað. Algjör snilld,“ sagði Kári áður en hann fór að fagna með félögum sínum.
Bónus-deild karla Valur Keflavík ÍF Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira