Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 10:01 Fólk trúði ekki eigin augum þegar Kári Jónsson skoraði sigurkörfuna í gærkvöld. Sýn Sport Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson segir það hafa verið rétt mat að láta flautukörfu Kára Jónssonar standa, í ævintýralegum sigri Vals gegn Keflavík í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar í gærkvöld. Taka beri tillit til mannlegra mistaka.
Keflavík komst tveimur stigum yfir þegar 0,4 sekúndur voru eftir og Valsmenn tóku þá leikhlé. Tíminn dugði svo til þess að Kári fengi boltann í hendurnar, næði að kasta og skora þriggja stiga sigurkörfu. Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, kvaðst þess fullviss að það væri einfaldlega ekki mögulegt að skora með þessum hætti á svo skömmum tíma. „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu,“ sagði hann og taldi um hreint og klárt rán að ræða. Mikið hefur verið rætt og ritað um hvort karfa Kára hafi í raun verið gild og reyndi Davíð Tómas að útskýra fyrir fólki, út frá reglum körfuboltans, að svo hefði verið. Davíð segir viðmiðin þau að á 0,3+ sekúndum sé mögulegt að grípa og skjóta boltanum. Séu aðeins 0,2 sekúndur eða minna eftir þá sé í mesta lagi hægt að blaka eða troða boltanum ofan í eftir innkast í átt að körfuhringnum. Eðlilegt að ná ekki að setja tímann strax af stað Þá bendir Davíð á þá staðreynd að fólkið á ritaraborðinu sér um að setja tímann af stað, þegar leikmaður fær boltann í hendurnar: „Inn í þessu mengi er „human error”, það er að það eru eðlileg viðbrögð að geta ekki sett tímann af stað akkúrat á þessu mómenti. 0,3 getur því orðið 0,4-0,6 þess vegna,“ skrifaði Davíð á Bónus-spjallinu á Facebook. Myndband sem körfuboltaþjálfarinn Hrafn Kristjánsson birti virðist svo renna stoðum undir það að ekki hafi meira en 0,4 sekúndur liðið frá því að Kári snerti boltann fyrst og þar til að hann hafði kastað honum frá sér. En bara svona eitt innlegg í umræðuna....held hann hreinlega haldi boltanum ekki lengur en 0.4 sec. Þetta myndband er langbesta sönnunargagnið. pic.twitter.com/40GlU8xrsg— Hrafn Kristjánsson (@ravenk72) April 12, 2026 Greining Davíðs afdráttarlaus Davíð ítrekaði svo í athugasemd að FIBA gerði ráð fyrir því að á ritaraborðinu þyrfti fólk tíma til að ýta á takka: „Ég er a ritaraborðinu. Ég þarf að sjá Kára grípa hann. Senda boð úr heilanum mínum að ýta puttanum mínum á takka. Þetta er 0.1-0.4 þess vegna. Innifalið hjá FIBA er „human error“. Í flestum tilfellum í mínum Evrópuleikjum hafa þeir sem eru á ritaraborðinu verið 50+. Sumir 60+. Heilinn og viðbrögð oft lengur að virka þá. Mín greining: Basket counts,“ skrifaði Davíð.
Bónus-deild karla Valur Keflavík ÍF Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira