Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. apríl 2026 12:00 Bjartur Steingrímsson segir fangaverði ekki geta búið lengur við sama ástand. Fangelsiskerfið er komið að þolmörkum og fangelsin eru yfirfull að sögn formanns Félags fangavarða og dæmi um að fangar gisti dögum eða vikum saman í einangrunarklefum. Formaðurinn segir stjórnvöld þurfa að bregðast við þegar í stað
Í yfirlýsingu sem Félag fangavarða sendi frá sér í morgun segir að síðustu misseri hafi öllum fangelsum landsins, lokuðum öryggisfangelsum jafnt og opnum fangelsum verið gert að nýta alla lausa fangaklefa. Dæmi séu um að tólf til fjórtán manns séu vistaðir á deildum sem hugsaðar eru fyrir átta. Þá segir í yfirlýsingunni að geta fangavarða til að bregðast við illdeilum meðal fanga sé verulega skert. Bjartur Steingrímsson starfandi formaður Félags fangavarða segir ástandið ólíðandi. „Þetta er náttúrulega ástand þar sem fangelsiskerfið getur ekki sinnt skyldum sínum, hvorki gagnvart þeim sem eru vistaðir innan þess né gegn samfélaginu. Það er bara allt fullt. Maður horfir bara á fangelsiskerfið í heild sinni, á síðustu tíu árum, ef við ætlum bara að mæta fólksfjöldaþróun þá hefðum við sennilega þurft að fjölga klefaplássum um einhverja tugi á síðustu árum en þeim hefur bara verið fækkað.“ Staðan hafi áhrif á fangaverði jafnt sem fanga. „Þetta er náttúrulega gífurlega íþyngjandi bæði fyrir vistmenn, þetta reynir á þolrif þeirra og gerir okkur mun erfiðara fyrir að veita þeim eðlilega þjónustu. Þetta er líka mjög erfitt fyrir starfsfólkið, sem getur bara ekki innt þá vinnu af hendi sem það vill og veitt þá þjónustu sem það vill veita. Og það er eitt að keyra sig í gegnum svona ástand í einhvern stuttan tíma en við sjáum bara hreinlega ekki fyrir endann á þessu. Það er það sem veldur okkur kannski mestu áhyggjunum.“ Fram kemur í yfirlýsingu félagsins að löng biðröð hafi myndast um hvert laust klefapláss, ekki hafi verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem hafi orðið til þess að einstaklingum sé sleppt úr haldi lögreglu eða þurfi að dveljast langtímum saman í fangaklefum á lögreglustöðum. Eruð þið vongóð um að stjórnvöld muni bregðast við ykkar ákalli? „Ráðherra var náttúrulega að tala um byggingu nýs fangelsis á Stóra-Hrauni um daginn og það er náttúrulega bra gott. Það er mjög þörf framkvæmd. En það er náttúrulega ekkert fyrr en eftir einhver ár. Við vonumst til að það verði eitthvað gert núna því augljóslega getur þetta ástand ekki haldið svona áfram.“
Fangelsismál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira