Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Lovísa Arnardóttir skrifar 14. apríl 2026 08:01 Bláa lónið er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar starfa um 850 manns. Vísir/Vilhelm Gífurlegur áhugi er á sumarstörfum hjá Bláa lóninu hf. í ár. Í tilkynningu kemur fram að ríflega 7.500 umsóknir bárust um 200 störf sem ráðið verður í fyrir komandi sumar hjá félaginu.
Í tilkynningu segir að þetta sé mesti fjöldi umsókna sem fyrirtækið hefur fengið til þessa og ríflega þreföldun frá því sem áður hefur verið. „Það er afar ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á störfum hjá okkur. Við leggjum ríka áherslu á að skapa aðstæður þar sem fólk fær tækifæri til að blómstra í starfi og þróa hæfileika sína,“ segir Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa lóninu, í tilkynningu. Hjá Bláa lóninu hf. og dótturfélögum þess starfa samkvæmt tilkynningu um 850 starfsmenn bæði hérlendis og erlendis. „Innan Bláa lónsins eru fjölbreytt störf í þjónustu, upplifun, framleiðslu, hönnun, vísindarannsóknum, tækni og stjórnun. Starfsfólk Bláa lónsins er með ólíkan bakgrunn, menntun, færni og reynslu. Lögð er áhersla á sterka liðsheild þar sem starfsfólk fær þjálfun, ábyrgð og tækifæri til að þróast í starfi. Mikill áhugi á störfum endurspeglar mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar fyrir ungt fólk og þau fjölbreyttu tækifæri sem þar bjóðast,“ segir í tilkynningunni.
Bláa lónið Sundlaugar og baðlón Vinnumarkaður Tengdar fréttir Velta heilsulinda jókst töluvert Hagstofa Íslands mældi markverða lækkun á veltu í ferðaþjónustu í lok árs 2025, að undanskildum heilsulindum þar sem veltan hafi aukist töluvert. Tólf baðlón eru starfandi á landinu. 24. febrúar 2026 12:51 Gætu ráðist í skráningu Bláa lónsins á markað um vorið á næsta ári Stjórnendur og aðaleigendur Bláa lónsins horfa til þess að næsti mögulegi gluggi til að ráðast í frumútboð og skráningu í Kauphöll sé á vormánuðum ársins 2026 en ferðaþjónustufyrirtækið, sem er að líkindum verðmetið á yfir hundrað milljarða, sér fram á að slá fyrri met þegar kemur að tekjum á þessu ári. 2. desember 2025 11:34 Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Íbúi í Hornafirði er uggandi yfir fyrirhuguðum áætlunum Bláa lónsins um að byggja nýtt baðlón við rætur Hoffellsjökuls á Suðausturlandi. Svæðið sé einstakt á heimsvísu, allt tal um uppbyggingu sé blekkjandi þar sem einstök og óröskuð náttúran á svæðinu sé einmitt það sem laði ferðamenn að. 11. nóvember 2025 06:46 Mest lesið Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Sjá meira
Velta heilsulinda jókst töluvert Hagstofa Íslands mældi markverða lækkun á veltu í ferðaþjónustu í lok árs 2025, að undanskildum heilsulindum þar sem veltan hafi aukist töluvert. Tólf baðlón eru starfandi á landinu. 24. febrúar 2026 12:51
Gætu ráðist í skráningu Bláa lónsins á markað um vorið á næsta ári Stjórnendur og aðaleigendur Bláa lónsins horfa til þess að næsti mögulegi gluggi til að ráðast í frumútboð og skráningu í Kauphöll sé á vormánuðum ársins 2026 en ferðaþjónustufyrirtækið, sem er að líkindum verðmetið á yfir hundrað milljarða, sér fram á að slá fyrri met þegar kemur að tekjum á þessu ári. 2. desember 2025 11:34
Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Íbúi í Hornafirði er uggandi yfir fyrirhuguðum áætlunum Bláa lónsins um að byggja nýtt baðlón við rætur Hoffellsjökuls á Suðausturlandi. Svæðið sé einstakt á heimsvísu, allt tal um uppbyggingu sé blekkjandi þar sem einstök og óröskuð náttúran á svæðinu sé einmitt það sem laði ferðamenn að. 11. nóvember 2025 06:46
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent