„Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 23:01 Þorsteinn vill sjá alvöru mætingu á laugardaginn næstkomandi. Vísir/Getty Ísland vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld. Næsti leikur liðsins er gegn Englandi næstkomandi laugardag og finnst Þorsteini Halldórssyni, þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu fótboltamönnum í heimi. „
Þetta var mikilvægur sigur og mér fannst við fín í kvöld. Við sköpuðum slatta af færum og vorum ógnandi í föstum leikatriðum,“ sagði Þorsteinn eftir leikinn. Íslenska liðið stjórnaði leiknum frá a til ö og ef Úkraína fékk einhver tækifæri sem voru af skornum skammti var það vegna eigin mistaka. Þrátt fyrir töluvert af sköpuðum færum tókst liðinu bara einu sinni að koma boltanum í netið. „Þær eru góðar í að verja markið og þær eru fljótar að koma sér niður. Það er ekkert auðvelt að fá dauðafæri á móti þeim. Manni hefði liðið betur eftir því sem leið á leikinn að vera 2-0 yfir og vera með þessa stjórn á leiknum.“ „Ég stillti upp hröðum leikmönnum fremst til að nýta okkur aðstæður. Það tókst ágætlega, þær áttu í basli með þær þegar þær komust á ferðina. Það var svolítið hugmyndin með þetta að vera með þrjár fljótar þarna frammi þannig að það yrði erfitt að deala við okkur í stöðunni einn á einn.“ Næsti leikur liðsins er gegn Englandi næstkomandi laugardag kl 16:30 á Laugardalsvelli. „Við þurfum að njóta sigursins í kvöld og njóta þess að hafa tekið þessi þrjú stig. Síðan þegar við vöknum í fyrramálið þá byrjum við að undirbúa okkur fyrir England.“ 1.463 áhorfendur gerðu sér ferð á leikinn og heyrðist í rauninni vel í þeim allan leikinn. „Þeir áhorfendur sem mættu voru frábærir og skipta okkur máli. Ef ég á að vera hreinskilinn þá eru það smá vonbrigði gagnvart því að liðið er búið að vera meðal þeirra bestu síðustu fimm til sex ár. Við náum einhvern veginn aldrei einhverjum fjölda á völlinn.“ England á eitt af bestu kvennalandsliðum í heimi og stóð liðið upp sem Evrópumeistarar árið 2025. Enska liðið sigraði stelpurnar okkar 2-0 í mars á þessu ári í Englandi þar sem rúmlega 27.000 stuðningsmenn mættu á leikinn. „England er að koma hérna á laugardaginn. Mér finnst það bara skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi. Það væri skrítið ef það myndu ekki mæta fleiri en mættu í dag.“
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira