„Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Sindri Sverrisson skrifar 18. apríl 2026 07:01 Glódís Perla Viggósdóttir fær eflaust góðan stuðning í dag á þeim stóru tímamótum sem bíða hennar. Getty/Manuel Winterberger Það verður stór stund á Laugardalsvelli í dag þegar Ísland mætir Evrópumeisturum Englands í fótbolta. Glódís Perla Viggósdóttir slær þá landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.
Glódís spilar í dag sinn 146. landsleik á ferlinum, þrátt fyrir að vera enn aðeins þrítug að aldri. Fyrsta landsleikinn lék hún árið 2012 og síðan þá hefur Glódís farið á fjögur stórmót og varla misst af leik. „Það er auðvitað margt sem stendur upp úr, mikið af minningum. Kannski helst það að ég byrjaði fyrsta landsleikinn minn [í stað þess að koma inn á sem varamaður]. Það kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Ég fékk það traust nýorðin 17 ára, að byrja fyrsta landsleikinn minn, og ég er virkilega þakklát fyrir að hafa fengið það traust svona snemma,“ sagði Glódís á blaðamannafundi í gær. „Auðvitað er það gríðarlega skemmtilegt og gríðarlega mikill heiður að hafa fengið að spila fyrir Íslands hönd svona oft. Það er eitthvað sem ég er gríðarlega stolt af og verður gaman að fá að gera á heimavelli fyrir framan okkar fólk, með mitt fólk í stúkunni sem hefur verið með mér í gegnum þetta allt saman og með stelpunum á vellinum,“ sagði Glódís. Glódís Perla Viggósdóttir var kominn inn í lið Íslands á EM árið 2013, nýorðin 18 ára gömul, og er hér í leik gegn Noregi í slag við Ödu Hegerberg.EPA/PATRIC SODERSTROM Glódís hefur verið fyrirliði frá því að hún tók við bandinu þegar Sara Björk hætti. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari er hæstánægður með helsta leiðtoga liðsins og það fordæmi sem hún setur. „Hún er leiðtogi í hópnum, fyrirmynd fyrir hinar í því hvernig hún hugsar um sig og er professional í öllu sem hún gerir. Það skiptir máli fyrir hópinn að hafa fyrirmynd sem gerir þessa hluti. Það fær aðrar til að hugsa líka um hvað þarf að gera til að vera á sem hæstu leveli. Hún setur standard fyrir hópinn, sem er gríðarlega mikilvægt,“ sagði Þorsteinn. Mótherjar Íslands í dag eru sjálfir Evrópumeistararnir en jafntefli eða sigur myndi hjálpa íslenska liðinu mikið í baráttunni um að komast á HM í Brasilíu á næsta ári. Þjálfari og leikmenn enska liðsins eru vel meðvitaðir um hæfileika Glódísar og metið sem hún mun nú slá. „Þetta er stór stund fyrir fótboltann hér og fyrir hana sjálfa. Hún spilar auðvitað líka með Georgiu [Stanway] í Bayern München og við vitum að hún er stórkostlegur leiðtogi, einn besti leikmaður liðsins og afar mikilvæg fyrir þær. Þetta er stór stund fyrir hana, að spila hérna gegn okkur,“ sagði þjálfarinn Sarina Wiegman sem fagnað hefur titli sem þjálfari á síðustu þremur Evrópumótum í röð. Lucy Bronze tók í sama streng og minntist einnig á hve fallega Stanway talaði um hana. „Við höfum átt svipað langan landsliðsferil og ég ber mikla virðingu og aðdáun til hennar. Ég veit hversu erfitt þetta er, að spila svona marga leiki fyrir sína þjóð, og hún hefur verið lykilmaður hjá Íslandi lengur en ég hjá Englandi. Hún hefur átt lengri landsliðsferil og það segir margt um hvernig manneskja og leikmaður hún er. Georgia talar mjög fallega um hana, hversu mikill leiðtogi hún sé og hvernig manneskja hún er, og við erum stolt af að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni í kvennaboltanum,“ sagði Bronze.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjá meira