Sport

Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raun­veru­legt? Er ég að fara að keppa?“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eygló Fanndal Sturludóttir var kjörinn Íþróttamaður ársins 2025.
Eygló Fanndal Sturludóttir var kjörinn Íþróttamaður ársins 2025. sýn sport

Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir.

Það stóð þó tæpt að Eygló gæti keppt á EM í Moldóvu vegna meiðsla sem hún varð fyrir á æfingu í aðdraganda mótsins.

„Tveimur vikum fyrir mót meiðist hún. Hún hrasar í lyftu, var í jafnhendingu og nær stönginni ekki alveg upp á axlir með þeim afleiðingum að stöngin lendir beint ofan á lærvöðvanum,“ sagði Ingi Gunnar Ólafsson, þjálfari Eyglóar, í áttunda þætti Augnablikanna, „Frá óvissu í sögubækurnar.“

Klippa: Augnablikin - Frá óvissu í sögubækurnar

„Ég get séð þetta ljóslifandi fyrir mér. Ég upplifi mómentið núna. Við vissum alls ekki í hvaða stöðu við vorum þá.“

Þá erum við ekki að fara að keppa

Eygló hélt þó alltaf í vonina um að hún gæti keppt á EM þótt óvissan væri mikil.

„Ég náði ekki að æfa vikuna fyrir mót eins og ég hefði viljað. Þetta setti svolítið strik í reikninginn og ég var mjög stressuð út af því og hrædd um að það myndi hafa mikil áhrif á frammistöðu mína. Þannig ég myndi ekki segja að ég hefði verið rosa „cocky“ komandi inn í þetta því ég vissi að það væri alveg mikið búið að ganga á rétt fyrir keppni,“ sagði Eygló.

„Eygló spurði mig: Ingi, er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa? Ég sagðist ekki geta svarað því en við gerum allt sem við getum. Þú ert að fara á þetta mót, ferð með okkur en ef það er eitthvað tvísýnt, einhver séns að þú sért ekki að fara að keppa, ef ég sé það dreg ég þig út úr mótinu. Þá erum við ekki að fara að keppa. Við erum að horfa inn í framtíðina,“ sagði Ingi.

Allt fór þó vel, Eygló keppti á mótinu og vann sigur í -71 kg flokki. Ekki nóg með það heldur setti hún í leiðinni þrjú Íslandsmet og þrjú Norðurlandamet.

Brot úr „Frá óvissu í sögubækurnar“, áttunda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×