Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. apríl 2026 12:56 Rússar fá keppnisleyfi á ný en aðeins undir hlutlausum merkjum. Mark Dadswell/Getty Images Siglingafólki frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi verður aftur leyft að taka þátt í keppnum á vegum evrópska siglingasambandsins. Íslenska siglingasambandið og 13 önnur kusu gegn því að hleypa Rússum aftur inn.
Stjórnarformaður Siglingasambands Íslands er ekki viðstaddur ársþing evrópska siglingasambandsins sem fer fram um helgina. Danmörk greiddi atkvæði fyrir hönd Íslands og kaus gegn tillögunni. „Ég gaf Danmörku mitt leyfi til að nýta okkar atkvæði. Við erum sammála Norðurlöndunum í því að halda Rússum utan keppni í bili. Við erum í samstarfi við Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin. Þar er þessu tekið afskaplega alvarlega, þetta er svo nálægt þeim, eins og hjá Finnlandi. Og við höfum hingað til tekið afstöðu með þeim,“ segir Anna Karen Jörgensdóttir, formaður SÍL, í samtali við Vísi. Siglingasamband Evrópu leyfir Rússum ekki enn að keppa fyrir hönd Rússlands eins og hér. Heldur verður hlutlausum fána flaggað. Clive Mason/Getty Images Tillagan var hins vegar samþykkt með 24 atkvæðum gegn 14. Sem þýðir að rússneskt og hvítrússneskt siglingafólk fær að keppa undir hlutlausum fána, eins og tíðkast hefur á síðustu Ólympíuleikum. „Við getum lifað með niðurstöðunni en hún er ekki eins og best verður á kosið. Við hefðum viljað sjá skýrari afstöðu tekna með útilokun svo lengi sem stríðið í Úkraínu stendur yfir,“ segir Anders Kristensen, formaður danska siglingasambandsins, við DR. Siglingasamband Evrópu er nýjast í röðinni til að hleypa Rússum aftur inn í sína keppni. Fyrr í vikunni var Rússum hleypt aftur inn í sundkeppnir, en þar voru engin takmörk sett.
Siglingaíþróttir Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti „Get ekki beðið um mikið meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Grindavík hóf tímabilið á stórsigri „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Grænn Rúnar dró Grindavík Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Sjá meira