Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Sindri Sverrisson skrifar 21. apríl 2026 19:15 Pellegrino Matarazzo faðmar Orra Stein Óskarsson eftir sigurinn gegn Athletic Bilbao í undanúrslitum spænska bikarsins. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Þegar Orri Steinn Óskarsson fékk nýjan þjálfara hjá spænska félaginu Real Sociedad um jólin hafði forseti félagsins spurt gervigreindina út í hennar mat á stöðunni. Hann kveðst feginn að hafa ekki hlustað á hana.
Orri og félagar í Real Sociedad urðu bikarmeistarar um helgina með sigri gegn Atlético Madrid í úrslitaleik, eftir vítaspyrnukeppni. Það gerðu þeir undir stjórn Pellegrino Matarazzo sem þar með varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn til þess að vinna titil sem þjálfari liðs í einhverri af fimm bestu deildum Evrópu. Hinn 48 ára gamli Matarazzo var ráðinn um jólin en forseti Real Sociedad, Jokin Aperribay, var ekki alveg viss um þá ákvörðun. Í aðdragandanum leitaði hann til gervigreindarinnar og fékk þau svör að Matarazzo væri ekki rétti kosturinn í stöðunni. Aperribay var hins vegar líka með Erik Bretos, yfirmann íþróttamála, sem ráðgjafa og kveðst afar feginn að hafa frekar hlustað á hann. „Erik sagði mér að velja Matarazzo og ég spurði gervigreindina hvort að hann væri góður þjálfari fyrir Real Sociedad. Hún sagði nei. Guði sé lof að ég treysti á Erik!“ sagði Aperribay, sem hefur lengi verið forseti Real Sociedad, sigurreifur í viðtali við Cadena Ser. Matarazzo, sem er af ítölskum ættum, ólst upp í New Jersey en hafði þjálfað Stuttgart og Hoffenheim í Þýskalandi áður en hann tók við Real Sociedad. Hann hafði í raun engin tengsl við spænska fótboltann fram að ráðningunni um jólin. „Ég þekkti hann ekki en heillaðist strax af honum á fyrsta fundi því hann vissi allt um alla. Hann var með stórkostlega greiningu á Real Sociedad,“ sagði Aperribay sem að gamni spurði svo gervigreindina aftur um það, eftir að liðið komst í úrslitaleik bikarsins, hvort Matarazzo væri góður kostur í þjálfarastarfið. „Hún sagði mér að hann væri frábær ráðning!“
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira