„Tölum saman eftir sex mánuði“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. apríl 2026 15:59 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er með sína menn á toppi Bestu deildarinnar eftir stórsigur í Eyjum. Vísir/Viktor Freyr Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með sína menn eftir yfirgnæfandi 6-2 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta í Vestamannaeyjum í dag. KR-liðið sýni þroskamerki eftir erfitt síðasta ár.
KR var með öll völd á vellinum á Hásteinsvelli í dag og gekk hreinlega frá Eyjamönnum í fyrri hálfleik. Staðan í hléi var 4-0 og sá fjögurra marka munur var síst of stór. „Við vorum orkumiklir og við vorum öflugir og þegar við spilum eins og við spiluðum í fyrri hálfleik þá er erfitt að eiga við okkur. Boltinn gekk hratt, ég hefði kannski viljað sjá menn taka aðeins betri ákvarðanir á síðasta þriðjungi, en pressan var góð, menn voru á tánum, unnu seinni bolta og það mikilvægasta var að við náðum að koma leiknum á okkar hraða, ekki hraða Eyjamanna,“ segir Óskar. „Hefðu Eyjamenn fengið að stjórna hraðanum í leiknum þá hefði þetta verið allt annar leikur. Við fengum leikinn á okkar forsendur sem var bara mjög öflugt,“ „Seinni hálfleikur ber blak af því að lið fara að skipta inn á, enginn hefur neinu að tapa og það verður ekki alveg sama bit og sama einbeiting og var í fyrri hálfleiknum,“ segir Óskar Hrafn við Sýn Sport. Keyrðu yfir Eyjamenn Óskar hrósar þá varnarleik sinna manna en þeir gjörsamlega kæfðu Eyjamenn stærstan part. Leikmenn ÍBV fögnuðu eflaust hálfleiksflautinu þar sem það gaf þeim tækifæri til að rísa upp úr djúpinu til að anda. „Ég var ánægðastur það með hversu sjaldan þeir náðu að fara hratt á okkur. Hversu grimmir við vorum þegar við töpuðum boltanum. Það hélst langstærstan hluta leiksins. Við misstum það ekki. En svo gleymum við okkur í öðru markinu og þá er okkur refsað, það er reyndar frábærlega gert hjá Sesari, ég ætla bara að segja það, meiriháttar móttaka og afgreiðslan í toppklassa. En við eigum að standa í flestum, ef ekki öllum liðum deildarinnar, þegar við erum á okkar degi,“ segir Óskar sem var ósáttur eftir 5-2 sigur á Þór þar sem KR hleypti inn tveimur mörkum í lok leiks, eins og í dag. „Ég sé það inni í klefa að mönnum sárnar að hafa fengið þessi mörk á sig undir lokin. Það er bara fínt að finna fyrir því. Vonandi brýnir það menn enn frekar að halda fókus í 90 mínútur varnarlega.“ Græddu mikið á mótlætinu Óskar var þá spurður hvort erfitt ár í fyrra, þar sem sóknarbolti KR var gagnrýndur í ljósi slæmra úrslita, hafi verið fórnarkostnaður þess að spila vel í ár. Eru hans menn þá komnir með tök á leikstílnum núna? „Tölum saman eftir sex mánuði,“ sagði Óskar og brosti. „Ég held það sé full snemmt að segja það. Auðvitað hefur það verið mín upplifun að liðið er orðið betra, það er ári eldra og það munar mikið um eitt ár. Þú byggir upp andlegan skráp þegar þú gengur í gegnum í það sem KR-liðið gekk í gegnum í fyrra. Seinni hlutinn var mjög erfiður andlega og margir hefðu getað farið upp í rúm, sett hausinn undir sæng og farið í fósturstellinguna,“ „En fyrst að menn lifðu það af þá held ég að þeir hafi grætt mikið á því. Það hafa margir leikmenn tekið risastór skref frá síðasta tímabili. Þó við höfum fengið einn nýjan leikmann á pappír í Arnóri Ingva, þá erum við raunar komnir með fjóra eða fimm því margir hafa bætt sig gríðarlega í vetur,“ segir Óskar Hrafn.
KR ÍBV Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira