Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Kjartan Kjartansson skrifar 24. apríl 2026 13:04 Monique Barbout, vistkerfaráðherra Frakklands, bíður eftir að taka á móti ráðherrum G7-ríkja í París. Bandaríkin senda ekki ráðherra þó að loftslagsmál hafi verið strokuð út af dagskránni. Vísir/EPA Loftslagsmál voru fjarlægð af dagskrá umhverfisfundar G7-ríkjanna svonefndu, sjö stærstu iðnríkja heims. Franskir embættismenn segja að það hafi verið gert til þess að tryggja friðinn við fulltrúa Bandaríkjastjórnar.
Umhverfisráðherrar ríkjanna sjö hittast nú í París til þess að ræða umhverfismál eins og líffræðilegan fjölbreytileika og vatnsmál. Loftslagsmál, stærsta umhverfisváin sem steðjar að lífríki jarðar, verður hins vegar ekki á dagskránni. Ráðgjafi Monique Barbut, franska vistkerfisráðherrans, sagði fréttamönnum að meðvituð ákvörðun hefði verið tekin um að takast ekki beint á við loftslagsmálin, að sögn evrópska blaðsins Politico. „Hvers vegna? Því afstaða Bandaríkjanna til þessara mála er vel þekkt og okkur fannst að það sendi ekki skilaboð samstöðu að takast á um þetta mál við Bandaríkin á vettvangi G7-ríkjanna,“ sagði ráðgjafinn. Þess í stað yrði sjónum frekar beint að málum sem væru síður líklega til þess að valda deilum. Senda samt ekki ráðherra til fundarins Þrátt fyrir þessa tilraun til þess að friðþægja Bandaríkjamennina eru þeir eina þjóðin sem sendir ekki ráðherra á fundinn í París. Meðstjórnandi Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, verður þess í stað fulltrúi Bandaríkjastjórnar. Bandaríkjastjórn lýtur nú forystu Repúblikanaflokksins af hafnar vísindalegri þekkingu á orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga. Donald Trump forseti hefur meðal annars dregið Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. Franskir umhverfissinnar eru ekki hrifnir af því sem þeir telja hræsni í eigin kjörnum fulltrúum. Þeir benda meðal annars á að Barbut hafi lýst óánægju þegar hún taldi ekki nógu langt gengið á síðustu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í vetur. „Það er þversagnarkennt að harma útkomu COP en þegar þú stýrir dagskránni notir þú það ekki til þess að taka á fílnum í herberginu,“ segir Fanny Petibon frá loftslagssamtökunum 350.org.
Loftslagsmál Bandaríkin Frakkland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira